Hæ yndislegu
Elsku Auður, Hildur, Guðbjörg og Kristín. Takk fyrir afmæliskveðjurnar.Mikið þykir mér vænt um þessar kveðjur frá ykkur. Það er dásamlegt að eiga hunda.
Ég ætla að fara með þær "frænkur" Aþenu (Sædís systir á hana) og Nótt upp að Hafravatni á eftir.
Já heyrðu Auður. Ég hef ekkert komist á sýningaþjálfanirnar, en hann Smári sem á Oliver er svo áhugasamur og elskar Oliver út af lífinu. Þú ættir að heyra Smára tala um hann.
Þessi hundur hefur nú aldeilis bjargað honum Smára, sem lenti í hræðilegu slysi í desember og hefur ekkert getað unnið. Hann hefur Oliver sem á endalausa hlýju, ást, og góða nærveru og er líka hvatning fyrir Smára að fara út og hreyfa sig.
Oliver er nákvæmlega eins og pabbi sinn Henry.........ég kalla oft HENRY, þegar ég er með þeim einhversstaðar, he,he.
Enn og aftur takk fyrir kveðjurnar. Knús handa ykkur.
