Aþena stríðnispúki.
18. júní 2009 klukkan 23:13
Það er gaman að horfa á "frænkurnar" Aþenu og Nótt, hendast á eftir bolta lengst út í vatn og keppnin þvílík á milli þeirra. Aþena tók upp á því að velta sér upp úr sandi. Vá hvað henni fannst það DÁSAMLEGT!.......mér fannst það nú ekki
, hún var nú bara send aftur út í vatn til að skola af sér skítinn áður en við fórum heim.
Eftir kvöldmat fórum við út á stóra tún með bolta. Þar naut Aþena sér við að stríða Nótt, með því að taka af henni boltann. Stinga af með hann, leggjast niður og bíða eftir að Nótt kæmi. Þá greip hún boltann aftur í kjaftinn og rauk af stað. Það er svo gaman að fylgjast með þeim.
Á morgunn ætlum við með allt stóðið, menn og málleysingja í sveitina.
, hún var nú bara send aftur út í vatn til að skola af sér skítinn áður en við fórum heim.Eftir kvöldmat fórum við út á stóra tún með bolta. Þar naut Aþena sér við að stríða Nótt, með því að taka af henni boltann. Stinga af með hann, leggjast niður og bíða eftir að Nótt kæmi. Þá greip hún boltann aftur í kjaftinn og rauk af stað. Það er svo gaman að fylgjast með þeim.
Á morgunn ætlum við með allt stóðið, menn og málleysingja í sveitina.
Berglind Gestsdottir
