Númer 234
19. júní 2009 klukkan 13:51
Já sýningarnúmerið var að detta inn um lúguna rétt í þessu. Hjá þeim allra sýningabrjáluðustu verður vikan sem framundan er streitubundin og vex spennan eftir því sem að nær dregur helginni. Svo ekki talað sé um þá hunda sem þurfa í klippingu og greiðslur og hvað allt þetta kallast. Það verður alveg brjálað að gera.
Við skvísurnar hérna erum bara slakar sko, enda ekkert markmiðið að vinna einhverjar rósir. Bara vera með. Hitta hundavini og horfa á aðra hunda.
Stebbi mágur minn er t.d. að spreyta sig í fyrsta sinn í hringnum. Hann á Ungverska Vizslu. Það eru alveg heilar þrjár viszlur að keppa, þannig að Míu á eftir að ganga VEL. Ég ætla sko að mæta snemma og horfa á Stebba. Hann á eftir að rúlla þessu upp. Svo verður Smári auðvitað með Oliver í ungliða flokkinum.
Geri ráð fyrir að Kalli Bridde verði með Valshamars - Visku.
Nú liggja þær "frænkurnar" Aþena og Nótt eins og skotnar hér við fæturnar á mér eftir útivist.

Berglind Gestsdottir

Jú jú það er rétt við mætum með hana "brjáluðu Bínu" (Visku) og þar að auki hann Henrý "ofurhlunk" og Ídu litlu. Höfum nú ekkert verið að undirbúa neitt hér. Viska og Ída eru á lóðaríi og heimilisaðstæður eru afar erfiðar því Henrý og Seifur eru sjúklega æstir í ungu skvísurnar og hreinlega öskra úr greddu hér úti svo allt hverfið er á nálum. Ekki mjög skemmtilegt en þetta fer að líða hjá og vonandi verða þær bara alveg búnar fyrir sýningu.
kv. Agla