Frábćr tilsögn
Kíkti á síðustu sýningarþjálfunina. Þar vantaði bara ALLA vini mína nema Nátttrölla skvísurnar voru mættar, sem betur fer. Það vantaði, Guðstein,Dóra,Smára,Guðbjörgu, Erlu og Gumma ofl.
Mér leið svona eins og Palla sem var einn í heiminum. En ég fékk FRÁBÆRA tilsögn. Auður þú ert bara snillingur. Svo ákveðin en samt styðjandi. Vilt að við gerum þetta ALMENNILEGA
auðvitað.
Mér fannst skrýtið að sjá ekki Smára og Oliver á sýningarþjálfuninni.....sendi sms og spurði hvort þeir feðgar væru ekki OK. Og viti menn........Smári hafði lent í árekstri. Það á ekki af þessum manni að ganga.
Fékk hnykk á hálsinn og er allur lemstraður. Ég ætla að reyna að sýna Oliver fyrir hann. Held hann sé enginn bógur í að gera það sjálfur. Smára dreymir um mynd af feðgunum Henry og Oliver saman.
Vona að Kalli og Agla séu til í það.

við Frosti erum á sporanámskeiði á mánudagskvöldum þannig að ég kemst ekki með hundana í sýningaþjálfun. Ég byrjaði á námskeiðinu alveg viss um að þetta yrði ekki vandamál því sýningaþjálfunin hefur alltaf verið á sunnudögum en svona er lífið........ ég skrepp bara suður með sjó á miðvikudögum til Þórdísar í sýningarþjálfun með strákana. Grey Smári, sendu kveðjur en það verður gaman að sjá þig með flottan rakka á sýningunni :o)