VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Stóri dagurinn.n :)

27. júní 2009 klukkan 07:39

..........eða eiginlega frekar kvíðvænlegi dagurinnLaughing. Skil ekki af hverju ég er að kvelja mig svona, ár eftir ár.Ég sofnaði um 2230 í gær og er þar af leiðandi vöknuð kl. 06 í morgun. Vaknaði upp með andfælum því ég hafði gleymt að stilla vekjaraklukkuna. Alveg endemis dæmigert fyrir mig.
Það sem er jákvætt, er að Nótt er í fínu formi. Það skemmtilegasta. Ég hitti góða vini. Kristín sem á Vetur ætlar að koma frá Keflavík, Elísabet og Þorsteinn ætla að kíkja á okkur, og það verður fullt af skemmtilegu fólki.
Það sem gerist í versta falli, er! að ég dett á hausinn. Það er stóri óttinn. Það gerðist næstum á einni sýningunni, og ég er svo lánsöm að það er til á video!!!!!!!, horfi voooooooða ALDREI á ÞAÐ sko.
Svo gæti Nótt á það til láta eins og idiot. Fá banana í eyrun og horfa á mig eins og hún þekki mig bara EKKERT.
Númer eitt, tvö og þrjú! Hafa gaman að þessu. Hlæja að vitleysunum og gera grín.
Gangi öllum rosalega vel í dagKiss.
Ps. Verð að segja ykkur frá því að ég hitti hana Bryndísi sem er með Sóltúns ræktunina í gær. Þvílíkir fagnaðarfundir. Við þekkjumst ekkert, en samt höfum við kynnst svo VEL í gegnum gotið hennar Millu systir Nætur. Við föðmuðumst eins og æskuvinkonur. DÁSAMLEGT.

Ætli ég skutli ekki inn á síðuna hrakfallasögunni okkar af sýningunni á morgun. Eftir sýninguna ætla ég með henni Kristínu sem á hann Vetur að synda, eða hreyfa hundana aðeins. Svo brenni ég í Borgarfjörðinn á ættarmót. Voða þætti mér gaman að keyra við hjá Myrru og Hjalta sem eiga Rökkva, og Sonju og Guðlaugi sem eiga Patta. Þetta fólk býr í nágrenni Borgarness.

Njótið dagsins eins og hann sé ykkar síðasti! Knús

Berglind Gestsdottir
Sæl Berglind
Mikið var gaman að hitta þig, það er já eitthvað sem tengir okkur, þökk sé þeim systrum. Verðum áfram í bandi, ég skoða það sem við ræddum um og læt þig vita ef ég finn einhvern :) ...... og flottur árangur hjá Nótt og þínum "ömmubörnum", til hamingju.
kv Bryndís og Milla
28. júní 2009 klukkan 23:21

Skrifa athugasemd