VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Costa del Kjós

12. júlí 2009 klukkan 23:05
Æðisleg helgi liðin. Kíkið á myndirnar. Laughing Nótt er nú á þriðja degi á lóðaríi. Eftir miklar vangaveltur fram og til baka. Ákvað ég að nota Henry aftur. Nótt og Henry eru alveg óskyld og bæði hraust og fallegir hundar.
Henry er blíðasti hundur sem ég hef nokkurn tímann hitt. Hann er drauma heimilishundurinn. Við elskum að hafa HenryLaughing. Henry gekk vel á júní sýningunni. Fékk rauðan/excellent. Hann þótti aðeins of þungur í þetta sinn......það vandamál könnumst við Nótt við. En ég ætla að koma kallinum í gott form fyrir ágúst sýninguna fyrir Bláskóga teamið. Henry er nú að kynnast því að fá grænmeti með matnum sínum, og reglulega hreyfingu á hverjum degi..........Ég vonast alltaf eftir því að Bláskóga teamið hringi í mig og segi að ég megi bara eiga hann.Cool he,he.
Það fer því að draga til tíðinda. Og vonandi eigum við von á hvolpum í kringum miðjan september.


Berglind Gestsdottir
Bryndís
 
Blessuð og sæl
Gott þú er búin að finna rakka hana, ég er búin að skoða og skoða retriever síðuna og allir brúnir rakkar sem ég finn og eru mjaðmamyndaðir osfv. eiga Úlla fyrir pabba eða afa. Svo gangi ykkur vel.
Bestu kveðjur Bryndís og Milla :o)
13. júlí 2009 klukkan 17:18
Sigrún Helga Celestina :)
 
Sæl og blessuð Berglind :)

Eruð þið komin með biðlista eftir hvolpum ? Er búin að vera á lista hjá þeim í Bláskógum síðan 2007, hef áhuga á brúnum labrador :)

Með kveðju
Sigrún Helga
19. júlí 2009 klukkan 13:27

Skrifa athugasemd