Malbikunarvélar hagga ekki stóískri ró
16. júlí 2009 klukkan 23:56
Í allan dag þá eru risa stórar malbikunarvélar búnar að vera í gangi, bókstaflega upp við húsgaflinn hjá okkur.
Drunurnar og lætin voru slík að jörðin nötraði og skalf. Nótt og Henry kipptu sér nú ekki upp við það frekar en annað. Undu sér vel í garðinum undir vökulum augum Arnórs yfir hundaeftirlitsmanns. Hann fór líka með hundana í göngutúr fyrir mig í dag, þar sem ég var að vinna frá kl. 0730 - 2330......En nú er ég líka komin í frí.

Berglind Gestsdottir