VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Aldrei fegurri en nú

26. júlí 2009 klukkan 20:39
Þá eru við komin heim í stutt stopp. Við heimsóttum Bláskógaræktun í gær,um leið og við skiluðum Henry...með eftirsjá. Mikið er hann dásamlegur hundur. Hann var kominn í þrusu form eftir dvölina hjá okkur í sveitinni. Kalli var ánægður með kallinn. Það var æðislega gaman að heimsækja loksins hans Kalla á herragarðinn fína í Reykholti. Hún Valshamars - Viska braggast vel hjá Bláskóga teyminu og það væsir ekki um hana. Agla takk fyrir sultuna góðu.  Hún var boðin gestum þegar við komum aftur í Kjósina Laughing Víðir biður um uppskriftina Laughing. Valshamars - Vetur kom ásamt sínu fólki í heimsókn í sveitina.Það var alveg frábært. Kristín og Guðjón! Takk fyrir komuna, og velkomin sem oftast.Eins og hinir rakkarnir þá er Vetur vaxin móður sinni langt yfir höfuð. Það var greinilegt að Nótt þekkti son sinn og hann móður sína.
Nótt er nú þvílíkt tálguð, flott,hraust og heilbrigð. Dásamlega falleg.Endalaus útiveran og frelsið hefur góð áhrif á menn og dýr.







Berglind Gestsdottir
Auður Ólafsdóttir
 
Hæ elskan, til hamingju..þetta hefur tekist..fjör hjá ykkur í september...!
27. júlí 2009 klukkan 15:55

Skrifa athugasemd