Nóttin hálf skrýtin
Á heimilinu hefur brotist út skæður sjúkdómur sem kallast ÝMINDUNARVEIKI. Einkennin eru slæm. Fólk sér ofsjónir sem og að sjá allt í hillingum allt að tveimur mánuðum fram í tímann.
Annars er Nóttin rosa róleg eitthvað og ólík sér. Kelnari en venjulega og sísvöng og sefur mikið. Víðir segir þetta spennufall eftir veruna með Henry, hasarinn og lætin, og svengdin er skrifuð á mikla hreyfingu og útivist. ...Ég veit ekki. Þetta er allt voða dularfullt............enda finnst mér nú fullsnemmt að daman sé farin að sýna einhver einkenni um óléttu. Ég reyndar þyki mjög neikvæð og leiðinleg efasemdarmanneskja
,
Ég hef alltaf þá sýn á lífið að það borgi sig að gera sér minni vonir en meiri svona almennt. Raunsæið er ríkjandi, því þá verða vonbrigðin ekki eins mikil, ef hlutirnir ganga ekki eins og maður vill að þeir fari. Mínir loftkastalar eru t.d. bara einnar hæðar
Hafið það gott í dag.
