Frábær helgi að baki.
Þessi dásamlega helgi leið allt of hratt. Fórum í Kjósina seinni partinn á föstudaginn, og vorum að koma heim.´
Vorum auðvitað úti alla helgina. Á laugardaginn var hátíð í sveitinni, sem er árlegur viðburður hjá sumarbústaðareigendum. Stebbi, Auður, Sól, Sölvi og Mía voru með okkur og gistu. Við sváfum sem sagt, samtals 13 í 38 fm. höllinni okkar, og það fór vel um alla.
Víði finnst bústaðurinn svo lítill að hann segist ekki getað skipt um skoðun inni í honum...he,he........en það geta 13 sofið þar.
Ég málaði bústaðinn hvítan að innan um síðustu helgi, og mér fannst ég hreinlega græða nokkra fermetra. Það er auðvelt að blöffa augað.
Á sunnudaginn keyrðum við Hvalfjörðinn og stoppuðum við í Hvalstöðinni og horfðum á hvalskurð. Lyktin var ekki eins slæm og í minningunni. Keyrðum síðan Draghálsinn og enduðum í veislu hjá tengdó í Munaðarnesinu.
Nótt naut sín þar sem annars staðar.
Í dag fengum við nágranna í kaffi.Víðir fór í offroad hjólatúr, og dagurinn endaði í dásamlegri matarveislu í Klaustrinu.
Það er helst annars af Nótt að frétta, að hún virðist við hungurmörk allan sólarhringinn, alveg sama þótt hún fái tvöfaldan matarskammt og meira til.
Hún lék við Gáska/Papillion, Snæ/Bischon Frisée og Míu/Ungverska Viszlu um helgina........og auðvitað Tuma/tjúa.
Bætti inn upplýsingum um svínaflensuna.
