Fréttir af hvolpunum.
04. ágúst 2009 klukkan 11:04
Ég sendi öðru hvoru póst á hvolpaeigendurna og spyr frétta af "ömmu börnunum". Fékk þessar fréttir af
Valshamars Víkingi/Brúnó.
Hann er búinn að vera á 2.vikna ferðalagi um landið með sinni fjölskyldu.
Hann skemmti sér konunglega enda útí sveit og leikið við mann á hverjum degi og einhver hjá manni frá því það er vaknað þangað til það er sofnað - ekki laust við það að hann hafi vitað að nú hæfist hið gamla líf í gær því hann vældi og vældi eftir að við komum hein og vildi bara fara út.
Ég redda myndunum fyrir þig í vikunni - fékk rosalega mikið hrós á tjaldstæðunum m.a. frá eiganda Labradors sem hefur eitthvað verið að sýna, man ekki hvað hann hét - en hvar með svarta 2,5 ára tík sem Bruno minn ætlaði að gera hvolpafulla á staðnum - já þeir eru ekki lengi að fatta út á hvað lífið og tilveran gengur.
Og Valshamars Von. Er líka búin að vera á ferðalögum með sinni fjölskyldu, en var heima um versl.manna helgi.
Von var með okkur Óla á INNIPÚKANUM um helgina ;-) Við vorum sem sagt bara heima - fórum með hana í langan göngutúr um allan Garðabæ og svo sólaði hún sig í "skugga" baði með okkur á pallinum, finnst það sko ekki leiðinlegt ;-) Var næstum því með okkur ofan í heita pottinum, því hún er alltaf með hausinn eiginlega ofan í - finnst heita vatnið gott ;-)
Ég bíð spennt eftir fréttum af hinum ungunum mínum. Mér finnst svo gott að fá að fylgjast með þeim.
Berglind Gestsdottir
