Lambalæri og marengs terta.
12. ágúst 2009 klukkan 23:26
Nótt hefði hreinlega dáið fyrir kræsingarnar í kvöld. Gamlan ég.....á sem sagt afmæli, og í tilefni dagsins höfðum við gott i matinn. Það var talsvert slefað........þ.e. Nótt. En hún fær ekkert svona lagað sem gæti komið maganum úr jafnvægi. Annars þá borðar hún mjög mikið og er svöng út í eitt........en er tág grönn. Hvert fer allur maturinn eiginlega. Nú er vika í að Nótt fari í sónar,mikið verð ég fegin að eyða óvissunni.
Berglind Gestsdottir

Hjartanæega til hamingju með daginn í gær vona að allt hafi smakkast vel og þú átt góðan dag :)
Kveðja
Kristín og Co.