FLEIRI UNDIRSÍÐUR Í VINNSLU
30. ágúst 2009 klukkan 10:45
Góðan daginn. Ég er nú með fleiri undirsíður í vinnslu, sem tengjast heimkomu hvolpsins.
Við setjum upp gotkassann í dag. Erum búin að þvo allt sem við munum nota við gotið, með þvottaefni fyrir viðkvæma. Það er mjög mikilvægt að nota þannig þvottaefni og ekkert mýkingarefni.
Ég ætla að þrífa herbergið sem gotið verður í með Rodaloni. Já eins og þið heyrið þá er að nógu að huga, og best að halda sér við efnið.
Veðrið er dásamlegt. Við förum í stutta göngutúra í dag..........gerið eitthvað skemmtilegt.
Berglind Gestsdottir
