ALLT TILBÚIÐ
30. ágúst 2009 klukkan 20:30
Þá er allt tilbúið. Gotkassinn upp settur og Nótt virðist fíla hann ágætlega. Við kúrðum þar aðeins saman í dag. Ég færði matardallana hennar á sama stað og gotkassann. Því fyrst eftir að hún er búin að gjóta, finnst henni vont að fara frá hvolpunum. Við tökum kannski myndir af gotkassanum og viðbúnaðarkassanum.
Berglind Gestsdottir

langaði bara að hrósa þér fyrir síðuna, mikil vinna sem þú leggur í hana. Frábært að fá svona góðar upplýsingar hérna.
Og þvílík vinna sem bíður ykkar eftir gotið líka greinilega, vá.
Kær kveðja,
Elísabet og fjölsk.