HEF EKKI HUGMYND UM FJÖLDANN.
02. september 2009 klukkan 18:57
Takk fyrir að skrifa Kristín Helga. Ég hef ekki hugmynd um fjölda hvolpanna. Það væri gaman að fara með hana í röntgen til að telja, en það er eitthvað það sem maður gerir ekki að ónauðsynju....þ.e. fara inn á dýraspítala, til að ná í einhverja pest.
Nú er ég hætt að fara með hana í göngutúra, þar sem við forðumst nú að Nótt sé að þefa af úrgangi annarra hunda svi hún nái sér ekki í Herpes sýkingu eða einhvern annan óþverra, sem gæti ógnað heilsu hennar og hvolpanna svona rétt fyrir gotið.
Á morgunn er það Húsasmiðjan...kaupa pvc rör til að búa til brík fyrir hvolpana í kassann.
Berglind Gestsdottir
