SVAF Á TJALD DÝNUNNI
21. september 2009 klukkan 09:02
Svefnlítil nótt með Nóttinni fögru. Þar sem drottningin hagaði sér undarlega í gær og virtist ótrúlega líkleg til að láta nú verða af þessu, ákvað ég að gista inni hjá henni á tjalddýnunni. Það var ekkert sérstaklega kósý.
Nótt vakti meira og minna í alla nótt, másandi og virtist þurfa þrífa allt bælið sitt voðalega vel.
En ekkert gerðist. Við erum núna að leggja okkur...safna kröftum.
Í dag og næstu daga vinnum við rólega í því að skipta yfir í próteinríkt fæði. Hún verður nú smám saman sett yfir á PRO PAC puppy, til að hafa orku til að sinna hvolpunum, og svo þeir éti hana ekki alveg upp sjálfa.
Berglind Gestsdottir

Baráttukveðjur frá okkur!
Stórt knús,
Elísabet og fjölsk.