VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Á DÝRASPÍTALANN

22. september 2009 klukkan 09:48
Hringdi til dýra, í skyndi vegna græns legvatns. Okkur var sagt að koma strax. Dýri jesúaði sig í bak og fyrir þegar hún sá hina verðandi móður.. HVAÐ ER HÚN EIGINLEGA MEÐ MARGA!!!!!!!!!!! HRÓPAÐI HÚN. Ég gat nú lítið sagt um það. Dýri sagði að hún væri líklega með marga hvolpa og þetta græna slím gæti þýtt að einn væri dauður. það verður bara að koma í ljós. Hún taldi ekki ástæðu til að grípa inn í. Nótt fékk kalksprautu til að auka samdrættina.
Sónarnum var skellt á bumbuna, og þar sáust mörg spriklandi hress hvolpaskott, sem bíða þess að komast í heiminn. En ekki var hægt að telja...þeir eru víst alla vega nokkrir.Smile
Við  erum komnar aftur heim, og Nótt er byrjuð að rembast .
 
Berglind Gestsdottir
Elísabet Anna
 
Úff, elsku besta kerlingin. Vonandi gengur bara allt vel hjá henni héðan í frá. Hugurinn verður alveg hjá henni og ykkur í dag!

Elísabet og fjölsk.
22. september 2009 klukkan 09:57
Gangi ykkur rosalega vel..hlakka til að sjá myndir af litlu gullmolunum...
22. september 2009 klukkan 10:28
Já ég er ein af þeim sem að kemst ekki heldur inn á myndaalbúmið alveg sama hvað ég reyni.. er albúmið læst eða bara spes vesen hjá mér...af því að mig langar svo að kíkja;))
22. september 2009 klukkan 10:30
Kristín Benediktsdóttir
 
Sæl verið þið :)

Spennan er alveg að fara með mann þessa klukkutímana og seinustu daga.

Hlakka mikið til að fá að sjá myndir og vonandi símtal :)

Gangi ykkur rosa vel með allt saman, baráttu kveðjur.

kv Kristín Ben Sandgerði.
22. september 2009 klukkan 11:23

Skrifa athugasemd