VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

FÆDDIR 5

22. september 2009 klukkan 13:02
Þá eru fæddir 5 heilbrigðir dásamlegir hvolpar. 2 tíkur og 3 rakkar. Nótt er enn að. Allt hefur gengið eins og í sögu, og allir nema einn fæddust í heilum líknarbelgnum....sem í gamla daga þótti gæfumerki (börn fædd í heilum belg). Fyrst fæddist tík, þá þrír rakkar og svo nú síðast tík. Þyngdin er frá 400 - 500 gr.
Signý dýrahjúkka er búin að vera hjá okkur og það var frábært. Við tókum voða sætar myndir af henni með henni Valshamars - Vöku, sem fæddist fyrst.
Hvolparnir eru kröftugir og duglegir. Fóru strax frekir á spena.....nú er sá 6 að koma og ég þarf að bregða mér í hanskana.... 
Berglind Gestsdottir
frábært að allt gangi vel og vonandi gerir það það áfram.
gleðilegar vökunætur ;)
Til hamingju,
Kv,
Erla og co í Svíþjóð
22. september 2009 klukkan 13:17
María Jónatansdóttir
 
Innilega til hamingju með fyrstu 5 - Er búin að skoða myndirnar af fystu stelpunni og hún er svo falleg. Gott að þetta hefur gengið svona vel og vona að það sem eftir er eigi eftir að ganga jafn vel.
Kv.
María Jónatansdóttir
22. september 2009 klukkan 13:27
Elísabet Anna
 
Æðislegt, æðislegt!! Til hamingju. Svakalega er hún dugleg:)
Mikið hlökkum við til að sjá myndir.

Knús,
Elísabet og fjölsk.
22. september 2009 klukkan 13:28
Kristín Benediktsdóttir
 
Bara geggjað, rosalega er fyrsti hvolpurinn fallegur.

Fylgist spennt með áfram, gaman að sjá hvað koma margir hvolpar í heildina :)

Gangi ykkur sem allra best.

kv Kristín Ben Sandgerði
22. september 2009 klukkan 14:23
Innilega til hamingju með þennan flotta hóp;))
Gott gegni með framhlaldið og vonandi ná allir að hvíla sig vel í nótt.
Kveðja úr Víkinni fögru
22. september 2009 klukkan 18:51
gudfinna
 
Innilega til hamingju með hvolpana, ertu búinn að lofa öllum stelpunum? kveðja Guðfinna
22. september 2009 klukkan 22:23

Skrifa athugasemd