HVOLPARNIR ERU NÚ 11
22. september 2009 klukkan 19:44
Já rétt lesið! Hvolparnir eru nú 11, og skiptingin þannig. 6 strákar 5 stelpur. Einn strákurinn fæddist lífvana, en ég náði að blása í hann lífi, og hann er nú frekur á spenann og kröftugur. Hann fékk ættbókarnafnið. VALSHAMARS - STORMUR. Ekkert annað en kröftugt nafn kom til greina á þennan lífseiga hvolp.
Berglind Gestsdottir

Til hamingju enn og aftur.