VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

LOKSINS TÍMI TIL AÐ SETJAST NIÐUR.

23. september 2009 klukkan 23:24
Jæja þá sest maður niður........Það hefur gengið vel í dag. Allir frekir og flinkir að rata á spenana.
Hér voru vaktaskipti í allan dag, og gekk eins og smurð vél Smile. Ég eltist símleiðis í allan dag við hvolpamjólk. Þori ekki annað en bæta aðeins á hvolpana svona fyrstu dagana alla vega. Á endanum voru það strákarnir í Dýragarðinum í Síðumúla, sem létu senda til sín fyrir mig mjólk frá Keflavík........dásamlegir drengir í Dýragarðinum. Þar hitti ég hann Stekkjardals Gumma. Það var mjög gaman að spjalla við hann um gotið. Hann er reynslubolti í þessum efnum.
Nú erum við búin að setja inn á hliðarsíðu, þyngdarupplýsingar um hvolpana og ættbókarnöfnin. Við munum setja inn nýja vigt á hverjum degi í alla vega viku.

Ég fékk óvænta heimsókn í kvöld. Mig hefur lengi langað til að sjá hann Brúnó sem er úr gotinu frá því í fyrra.
Við tókum myndir og þær eru inni á myndasíðunni. Hann er að þroskast svakalega flott upp, og er allur hinn glæsilegasti.  Skarphéðinn TAKK FYRIR KOMUNA.........ég býð ykkur í bæinn næst. Er með allt liðið mitt í sóttkví næstu daga.
Nú er Gauti að gefa pela.....og fílar sig bara vel í svona pabba hlutverki. Wink
 
Berglind Gestsdottir
Elísabet Anna
 
Svakalega standið þið ykkur öll vel, hugsað fyrir öllu. Og fljót að setja upplýsingar og myndir á síðuna.....sem eru náttúrulega BARA ÆÐISLEGAR! Svakalega eru þeir fallegir, enda ekki við öðru að búast með þessa foreldra:-)
Við fylgjumst vel með, enda mikil spenna hér á bæ;)

Bestu kveðjur,
Elísabet, Steini og börn.
23. september 2009 klukkan 23:54
Kristín Benediktsdóttir
 
Til hamingju með alla fallegu hvolpana vá hvað þið hljótið að vera stolt :)

Frábært að geta fylgst svona vel með ykkur, bara æðislegt .

Gangi ykkur rosalega vel .

kv Kristín Ben Sandgerði
24. september 2009 klukkan 11:28
Þeir í Dýragarðinum eru náttúrulega þeir bestu og með lang lang lang bestu þjónustuna, mæli 200% með þeim :)
24. september 2009 klukkan 20:26
Gott að heyra að allt gegnur vel;)) Svo gaman að fylgjast með þessum súkklaði molum..
25. september 2009 klukkan 09:35

Skrifa athugasemd