4 daga
26. september 2009 klukkan 08:46
Hvolparnir hanga út í eitt á spenunum, og Nótt borðar og borðar og drekkur og drekkur. Ég er nokkuð viss um að hún innbyrðir marga lítra á dag af vatni.
Hún er nú aðeins farin að þora að fara frá börnunum sínum augnablik. Liggur jafnvel fyrir utan búrið þegar þeir sofa allir vært. Þá sér maður hana horfa yfir hópinn sinn stolta á svip.
Næturnar fara meira í að sinna henni en hvolpunum. Allur þessi matur og drykkur, þarf að skila sér....og það var ekkert sérlega huggulegt að standa úti á náttfötunum í nótt í haglélinu. 
Endilega verið dugleg að kvitta í gestabókina. Ég hef voða gaman af því.
Berglind Gestsdottir

Sé þig í anda skjálfandi úti með taum í annarri og poka í hinni haha