ŢEKKJA MIG
01. október 2009 klukkan 22:52
Við fengum ljúfa heimsókn frá fjölskyldunni í Sandgerði. Þau stoppuðu bara dágóða stund og við spjölluðum heilmikið. Mér líst voða vel á hvolpafjölskyldurnar. Mikið er ég lánsöm.
Takk fyrir hlý skrif til okkar. Kveðjurnar ykkar skipta mig miklu máli
Ég átti aftur stefnumót við strákana í Dýragarðinum í dag. Nú gekk ég út með 2 kílóa fötu af hvolpamjólk. Þjónustan áfram svo góð.........ég nefnilega gleymdi veskinu mínu heima. Það var nú ekki málið. Borga bara á morgunn......þetta fannst mér gamaldags og krúttlegt, og bar vott um traust. TAKK.
Eitt skemmtilegt. Eftir að hafa gefið öllum hvolpunum pela.....þá ákvað ég að leggjast aðeins hjá þeim. JÁ! ég kemst fyrir :) Ekki leið á löngu þar til þeir flykktust til mín hver á fætur öðrum og fóru að leita að spena.
Held þeir þekki lyktina af mér og tengja hana við mat. DÁSAMLEGT.
Af Litlu Líf er það að frétta að hún virðist vera að braggast vel. Hefur gott af aukabitanum sínum.
Og að síðustu. Kalli hjá Bláskógaræktun/ á Henry. hringdi og spurði frétta af hvolpunum. Hann bað mig líka að vera sér innan handar á laugardaginn á kantinum við sýningarhringinn. Hann og Agla ætla að sýna 5 hunda. Vá þau dugleg. Ég ætla að vera á hliðarlínunni og hjálpa til. Það er mér mikil ánægja og gleði að hjálpa þeim.
Kári og Dagsi! Þið verðið uppi í stúku með dagskrána og fylgist með. Mæting hjá mér kl. 09. Ykkur 0930.

Takk fyrir hlý skrif til okkar. Kveðjurnar ykkar skipta mig miklu máli
Ég átti aftur stefnumót við strákana í Dýragarðinum í dag. Nú gekk ég út með 2 kílóa fötu af hvolpamjólk. Þjónustan áfram svo góð.........ég nefnilega gleymdi veskinu mínu heima. Það var nú ekki málið. Borga bara á morgunn......þetta fannst mér gamaldags og krúttlegt, og bar vott um traust. TAKK.
Eitt skemmtilegt. Eftir að hafa gefið öllum hvolpunum pela.....þá ákvað ég að leggjast aðeins hjá þeim. JÁ! ég kemst fyrir :) Ekki leið á löngu þar til þeir flykktust til mín hver á fætur öðrum og fóru að leita að spena.
Held þeir þekki lyktina af mér og tengja hana við mat. DÁSAMLEGT.Af Litlu Líf er það að frétta að hún virðist vera að braggast vel. Hefur gott af aukabitanum sínum.
Og að síðustu. Kalli hjá Bláskógaræktun/ á Henry. hringdi og spurði frétta af hvolpunum. Hann bað mig líka að vera sér innan handar á laugardaginn á kantinum við sýningarhringinn. Hann og Agla ætla að sýna 5 hunda. Vá þau dugleg. Ég ætla að vera á hliðarlínunni og hjálpa til. Það er mér mikil ánægja og gleði að hjálpa þeim.
Kári og Dagsi! Þið verðið uppi í stúku með dagskrána og fylgist með. Mæting hjá mér kl. 09. Ykkur 0930.
Berglind Gestsdottir

æðislegt hversu vel gengur með hvolpana, hlakka mikið til að koma í heimsókn :) En eruð þið ekki til á að vera með eitthvað af þessum 5 hundum i bás á laugardeginum? Vantar alltaf hunda í bás.........