VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

VAXTARÆKT.

03. október 2009 klukkan 00:11
Lítið annað en gott að frétta. Hvolparnir eru duglegir í vaxtaræktinni.  Það er svo undur sætt, að heyra þá æfa urrið sitt og geltið á meðan þeir sofa. Þeir eru líka farnir að reyna að stíga í litlu fæturna sína. Maður sér miklar framfarir hjá þeim á hverjum degi. Aukinn  styrkur og jafnvægi. Nú fer að styttast í að það fari að rifa í litlu bláu augun þeirra. Já augun eru blá/svört í byrjun. Svo breytast liturinn.
Við fengum heimsókn í kvöld. Bara innan fjölskyldunnar......Já ég passa alltaf upp á, að hvolpunum sé ekki rænt frá okkur. Leita á fólki áður en það gengur út........segi svona smá grín.  Það verður örugglega gestkvæmt um helgina. Bara gaman. Hlakka til að hitta hvolpafólkið mitt.
Það styttist í  að við fáum heimsókn frá Vestmannaeyjum, Egilsstöðum, og Suðurnesjunum. Mér finnst nú ekki leiðinlegt að hvolparnir mínir verði landsfrægir..he,he.
Ég hlakka til morgundagsins, að fara og hjálpa Kalla og Öglu með hundastóðið þeirra á HRFI sýningunni. Búin að taka til brúnu sýningartaumana mína og keppnisvasann minn. Allt klárt.
Ætla að taka eina pelaumferð og skríða svo í bælið mitt á gólfinu......huggulegt Cool ...en vitiði......ég er svo þreytt að ég gæti sofið hvar sem er. :) Góða nótt og hlakka til að sjá ykkur,heima og að heiman.Kiss
Berglind Gestsdottir
Kristín Benediktsdóttir
 
Elsku kellingin skil vel að þú skulir vera þreytt, brjálað að gera hjá þér, enda er hugsað svo vel um hvolpana að það er allt skínandi hjá þér.
Væri nú meira en til í að hjálpa til ef það væri ekki svona langt á milli okkar :)

er með hugann hjá þér :)

Kveðja úr Sandgerði

Kristín Ben
03. október 2009 klukkan 00:44

Skrifa athugasemd