VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

URRANDI SVEKKT

03. október 2009 klukkan 19:28
Vá var svo svekkt eftir sýninguna. Veit eiginlega ekki hvað mér á að finnast um dómarann. Valshamars - Viska fékk excellent og vann unglðaflokkinn. Henry með excellent og vann opna flokkinn. Aðal spaðinn eins og Kalli segr alltaf. En Valshamars - Von gekk ekki nógu vel. Fékk Good. Eins og hún er falleg. Hún er of þung og það eyðilagði svona over all fyrir henni. Svo sagði hann vanta í hana tennur. Alveg með ólíkindum ósanngjarnt.
Sem dæmi um tík sem fékk gulan borða núna/good, er tík sem hefur nánast alltaf fengið rauðan borða.
Fatta þetta ekki. En svona er hundaheimurinn. Sú sem fékk gulan borða núna gæti unnið grúppuna næst. Vá þetta getur verið svo leiðinlegt. 
Jæja en að öðru........Ég hitti Jóhann og kristínu á sýningunni og bauð þeim að koma og skoða hvolpana. það var Jóhann sem tók eftir því að ein lítil skotta er búin að opna annað fallega augað sitt, svo fallega blátt. Drottinn minn hvað þessi augu eru  dásamleg. 
Nú hvolparnir komnir með ólar. Ein tíkin er þó ómerkt. Hún er með hvítan blett á bringunni.
Við tókum myndir af hverjum hvolpi fyrir sig, Ætla að búa til sér albúm fyrir hvern fyrir sig. Og safna þar inn myndum. 
Berglind Gestsdottir
Signý og Nils
 
Frábærar myndir og gaman að sjá muninn á þeim frá því síðustu helgi.
Hlökkum til að sjá þessa gullfallegu hvolpa fljótlega.

Bestu kveðjur,
Nils og Signý
03. október 2009 klukkan 23:41
Kristín Benediktsdóttir
 
hæ hæ

Skil vel að þú sért svekkt :) ótrúlega skrýtnir dómar.

En omg myndirnar af hvolpunum þær eru ómótstæðilegar algörlega, maður getur hreinlega ekki hætt að horfa á þá og langar að knúsa þá í kaf.

kv Úr Sandgerði
04. október 2009 klukkan 00:01
Kristín & Jóhann
 
Takk fyrir okkur, það var ekkert smá gaman að kíkja á þessi krútt og ekkert smá erfitt að slíta sig í burtu.... Við kíkjum bráðlega aftur ;)

Kveðja,
K&J
04. október 2009 klukkan 21:16

Skrifa athugasemd