VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

MIKIĐ GAMAN Í DAG.

11. október 2009 klukkan 19:53

Það er búið að vera líf og fjör hjá okkur í dag. Rakkarnir hittu nýju fjölskyldurnar sínar. Við tókum einstaklingsmyndir af hverjum rakka fyrir sig sem við setjum í viðeigandi albúm, sem hver og einn á.
Stoltir eigendur rakkanna eru:
Valshamars - Castro = Jóhann og Kristín/Suðurnes
Valshamars - Dagur = Dagur Kári/Kári og Inga./Reykjavík
Valshamars - Stormur = Sigrún og Brynjar/Suðurnes
Valshamars - Orion = Þorsteinn og Elísabet Anna/Reykjavík
Valshamars - Galdur = Kristín og Gunnar/Suðurnes
Valshamars - Skuggi = Særún og Sibbi/Vestmannaeyjar.

Innilega til hamingju með fallegu strákana ykkar.Laughing Verið nú dugleg að heimsækja þá, og lesið ykkur endalaust mikið til um tegundina/labrador.

Berglind Gestsdottir
Elísabet Anna
 
Yndislegur dagur:-) Takk fyrir okkur og við verðum sko dugleg að koma, það verður nóg að gera hjá ykkur með 11 hvolpafjölskyldur uppá arminn, haha.
Já og ég er einmitt byrjuð að lesa bækur um labradorinn, um að gera að vera vel undirbúinn;)

Kær kveðja,
Elísabet og fjölsk.
11. október 2009 klukkan 21:44
Sigrún Helga
 
Takk kærlega fyrir okkur
Notalegt að koma til ykkar :) Eigið mjög fallegt og hlýlegt heimili. Verður gaman að koma næstu vikurnar og knúsa Storminn.

Með kveðju
Suðurvallargengið
12. október 2009 klukkan 10:14
Kristín Benediktsdóttir
 
Takk fyrir kærlega fyrir okkur

Þetta var yndislegur dagur og afskaplega notalegt að koma til ykkar eins og alltaf, já vertu viss um að við komum eins oft og við getum næstu vikurnar til að hnoðast með litla skottið okkar.

Kveðja úr Sandgerði :)
13. október 2009 klukkan 00:29

Skrifa athugasemd