VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

ÓTRÚLEGT

21. október 2009 klukkan 23:21

Það er ótrúlegt þetta meðfædda villta eðli í hundunum. Úlfurinn í þeim. Þeir ná góðu taki/biti á fórnarlambinu og hrista svo hausinn af öllu afli. Líkt og þeir gera þegar þeir drepa úti í náttúrunni. Aðeins 4 vikna gamlir og kunnáttan að drepa er meðfædd en ekki lærð. Merkilegt.
Hafið þið spáð í það.......að hundar elska leikföng sem tístir í. Þeir djöflast og djöflast með þau.....þar til við þolum ekki meira og rífum tístuna úr. Þar með er áhugi hundsins á leikfanginu líka liðinn. Tístið líkist skrækjum í dýri í sjálfheldu og lífshættu. Þegar hljóðið hættir er verkefninu lokið. MISSION COMPLETED.
Ég setti inn hjá þeim einhvern ræfils bangsa, með langa útlimi og langt skott. Það var auðvitað reynt að drepa hann um leið :) Svo er hann dreginn um allt. Aumingja bangsinn. En mér finnst þó betra að horfa á þá níðast á honum en hver öðrum.......sem þeir víla ekki fyrir sér.......og veinin sem heyrast frá fórnarlömbunum minna á tíst í leikföngunum umtöluðu.
Þetta var pistill dagsins. :)
Það eru nýjar myndir af Valshamars - Freyju í albúminu hennar.
Góðar stundir. 

Berglind Gestsdottir
Ríkey Ferdínandsdóttir
 
Bara falleg, eins og þau öll.
Bkv frá hinni mömmu Veru ( sem finnst tíminn allt of lengi að líða núna) og bara getur varla beðið eftir því að fá hana heim í sveitina!!!
22. október 2009 klukkan 09:33
Bryndís Björnsdóttir
 
Sæl vertu
Já þetta er hverju orði sannara, ótrúlegt þetta veiði- og drapseðli í þeim.
kv Bryndís og fjórfætlingarnir
23. október 2009 klukkan 07:00

Skrifa athugasemd