NÓTT ELUR HVOLPANA UPP
22. október 2009 klukkan 19:47
Það er gaman að fylgjast með Nótt ala hvolpana upp. Hún urrar á þá, stuggar við þeim eða leikur við þá.
Hvolparnir eru nú hættir að fá matinn maukaðan. Matarkúlurnar eru nú bleyttar upp og eru mjúkar. Þeir þurfa því að tyggja matinn sinn, sem gengur vel. Þeir eru allir farnir að vilja vatnið, sem er gott.
Berglind Gestsdottir
