FÓRU ÚT.
04. nóvember 2009 klukkan 21:01
Hector, Freyja,Garpur og Mocca fóru út í garð. Í þetta sinn tvö og tvö saman. Hvolparnir eru nú líka farnir að vera meira tveir og tveir saman inni hjá okkur til að umhverfisvenjast og svoleiðis.
Hector var t.d. inni hjá okkur áðan........hann er hress. Stökk inn í sjónvarps skápinn eins og ekkert væri. :) og út aftur. Hann er uber hress. :) Það er komin dagsetning á heilsufarsskoðunina. 11.11.09 kl. 1530. Hún Katrín dýralæknir kemur hingað heim til okkar með allar græjur. Þetta verður talsvert verkefni :)
Svo verð ég að nefna það hvað ég er ánægð með að allir sem vettlingi geta valdið ætla saman á námskeiðið í janúar. Þetta verður svo gaman.
Flensan er á undanhaldi og ég get ekki beðið eftir að komast út!.
Nýjar myndir undir: ÝMSAR MYNDIR.
Berglind Gestsdottir

Æ gaman að sjá þá úti í garði :)
Þeir eru nú meiri krúttin, já Hector er hress það er ekki spurning, þetta verður bara skemmtilegt að fá hann heim og þvílíkt challenge að siðan hann til :))))
Hlökkum mikið til að fá þennan fallega strák heim :)
kv Kristín Ben og fjölskylda