VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Hm!!!!!! hvaða hljóð var þetta ??????

05. nóvember 2009 klukkan 12:42

Spurði Vaka mig um þegar við vorum við það að sofna í gærkvöldi.. .......æ veit ekki svaraði ég, en fannst samt eins og ég kannaðist við það. Ég hefði betur tékkað á þessu. Hliðið á gerðinu var sem sagt ólæst, og það var þegar hvolparnir uppgötvuðu það, þeyttu því upp í sameiningu og þustu út í frelsið........þegar við heyrðum þetta hljóð, en brugðumst ekki við. Ekki að þeir hefðu getað farið sér að voða þarna í skálanum. Langt frá því.........en verkunin maður minn í morgunn. Ég held að ég sé ekkert að fara nánar út í þá sálma, því fólk er mis klígjugjarnt. Jukk.

Það fóru sem sagt 2 klukkutímar í að skúra og skrúbba skálann, og skafa upp þið vitið.  Þetta kennir manni að bregðast alltaf strax við. Hvolparnir voru æðislega hressir í morgunn. Búnir að vera í svaka partýi í skálanum að djamma í alla nótt. Þeir voru svo glaðir að sjá mig eins og alltaf.........og auðvitað gat ég ekki skammað þá. ÞVÍ ÞETTA VAR MÉR AÐ KENNA!!!!!!!!!.

Berglind Gestsdottir
Kristín Benediktsdóttir
 
hahahhaaha já ok hefði nú verið grát broslegt að sjá þetta :)


Get rétt ímyndað mér útganginn í skálanum omg :)


aumingja kellingin að þurfa vera í 2 ´tíma að þrífa :)

kv Kristín Ben
05. nóvember 2009 klukkan 14:20
Elísabet Anna
 
Hahaha, úff, vorkenni þér nú nýskriðinni uppúr pestinni að þurfa að lenda í þessu samt:/ En samt......jeminn hvað það hefur verið mikið stuð hjá þeim:) hehe
knús,
Elísabet
05. nóvember 2009 klukkan 16:07
Ríkey Ferdínandsdóttir
 
Litlu ormarnir!
05. nóvember 2009 klukkan 23:18

Skrifa athugasemd