VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

GAMLIR GÓÐIR SIÐIR

15. nóvember 2009 klukkan 13:03

Þá höfum við Nótt tekið upp okkar gömlu siði. Ég klæddi mig í vetrargallann, náði í leikfangið góða. Handklæði. Plastpoka og taum. Við keyrðum rakleitt upp að Hafravatni. Á leiðinni hugsaði ég........hún fæst nú varla til að fara ofan í ....sjáum til. En viti menn. Nótt henti sér rakleiðis út í ískalt vatnið á eftir boltanum sem ég kastaði.
Ég kastaði full langt í fyrsta skiptið, það var mikill öldugangur. Við endurtókum leikinn 10x.Nótt sótti alltaf í vatnið. Héldum svo áfram aðeins á landi líka. Kuldinn beit í kinnarnar á mér, en mikið var þetta dásamlegt. Ég tók mig svo til þegar við komum til baka og burstaði feldinn hennar vel og lengi. Fyrir góða frammistöðu fékk Nótt bein, sem hún nagar nú af bestu lyst. Hún liggur á púðanum sínum úti í skála. Hjá henni liggur hann Valshamars - Skuggi/Moli sem bíður eigenda sinna, hreinn og strokinn :)
Hvolpunum gengur vel á nýju heimilunum sínum. Enda hörku fjölskyldur sem verða til fyrirmyndar í uppeldinu sem eiga þá. Ég fæ fréttir reglulega.Aðalfréttirnar eru hversu oft er búið að kúka og pissa ýmist úti eða inni. :) Allir í skýjunum yfir hvolpaskottunum fögru. Laughing sem eru að týnast heim þessa helgina.

Berglind Gestsdottir

Skrifa athugasemd