EKKI TÓMLEGT ENNŢÁ :)
23. nóvember 2009 klukkan 23:58
Nei, nei það er ekkert þannig tómlegt. Enn hef ég hana Valshamars - Freyju til að knúsa :) Hana fæ ég að hafa til 10.desember. :) Valshamars - Castro /Garpur fór til sinnar yndislegu fjölskyldu í dag. Jóhann og Kristín þið eruð frábær eins og allar hinar fjölskyldurnar. Við lékum góða stund í garðinum í dag. Síðan tók við að baða Garpinn og gera klárt fyrir brottför hans. Jóhann og Kristín komu færandi hendi með ostakörfu handa mér :) og leikfang handa Nótt. Þúsund þakkir fyrir. Já það má ekki gleyma því að frá einum fékk ég Kampavín og annarri fjölskyldu rauðvín og súkkulaði :) Enn og aftur bugta ég mig og beygi af þakklæti. :) Heppin ég :)
Berglind Gestsdottir
