VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

SLEÐAFERÐ OG HEIMSÓKN TIL VALSHAMARS - VÖKU.

28. desember 2009 klukkan 17:02

Þvílíkur dagur til útivistar. Algjört jólakorta veður. Ég fór með Vöku og vinkonu hennar í Ártúnsbrekkuna. Þar var fjölmenni eins og alltaf á góðum snjó degi, og mikil og skemmtileg stemmning. Fullorðnir urðu aftur börn.

Nótt var í taumi, en mikið langaði hana að geysast með upp og niður brekkurnar.

Ég fór nú með hana í góðan lausagöngutúr á meðan stelpurnar renndu sér. Hún kafaði með hausinn í skaflana, og naut lífsins í botn.

Eftir þetta fórum við og kíktum á Valshamars- Vöku. Það væsir ekki um hana frekar en  hina hvolpana. Henni líður greinilega mjög vel. Ég stoppaði nú stutt við klædd í snjógallann og Vaka á leiðinni í 3.parvosprautuna með Siggu og Óla.  Forsíðumyndin er af Valshamars - Vöku.

Ef veður leyfir gæti hugsast að ég fengi mér bíltúr suður með sjó á gamlársdag.

Berglind Gestsdottir

Skrifa athugasemd