DUGLEGIR!
19. janúar 2010 klukkan 23:53
Það var alveg stór skemmtilegt að hitta 6 af hvolpunum á námskeiðinu í kvöld. Tíminn hófst með því að Albert gekk "stofugang"...þetta var svona húmor á milli mín og Ríkeyjar
Eigendurnir settust á stéttina og lögðu hvolpana í slökun.
og Albert gekk á milli og spurði hvernig hafi gengið að æfa sig heima oþh.
Algjörlega óborganleg sjón. Hvolparnir eru allir mjög yfirvegaðir og góðir og standa sig með mikilli prýði á námskeiðinu.
Ég verð nú að hrósa eigendunum fyrir þeirra dugnað á námskeiðinu. Þið eruð að standa ykkur mjög vel.
Eftir námskeiðið skruppum við Nótt í heimsókn til hans Valshamars - Skugga/MOLA. Hann býr í Vestmannaeyjum en er núna hér uppi á landi.
Hann er að vaxa vel upp, er mjög rólegur og Særún og Sibbi alsæl með hann.
Berglind Gestsdottir
