9 BÚNIR Á HVOLPANÁMSKEIÐI
16. mars 2010 klukkan 17:34
Þá hafa 9 hvolpar af 11 lokið hvolpanámskeiði og það með láði. MJÖG GOTT. Hvolparnir tveir sem ekki hafa lokið námskeiði búa annars vegar í Vestmannaeyjum og hins vegar á Egilsstöðum,þar sem framboð námskeiða er minna en hér í þéttbýlinu.
Það er allt gott að frétta af hvolpum og mönnum. Ég afla mér mjög reglulega frétta, og ég leit t.d. á Bokka á laugardagskvöldið. Fagnaðarfundirnir voru gífurlegir og svo horfði hann dapur á eftir mér eins og hann sæi mig ALDREI aftur. En ég kem aftur engar áhyggjur af því. Það er svo gaman að fylgjast með hvolpum og eigendum,þroskast saman.
Ég fæ mikið af fyrirspurnum um næsta got og best er að hafa samband í tölvupósti, svo ég geti sett ykkur á listann. www.berglind_1@hotmail.com
Bestu kveðjur til ykkar allra :)
Endilega senda mér myndir af hvolpunum :)
Berglind Gestsdottir
