1.MAÍ DAGUR 12
01. maí 2011 klukkan 13:06
Það er 1.maí og ég er aftur búin að taka fram North Face úlpuna og gúmmístígvélin. Einhver sagði við mig að sumarið hefði verið tekið upp í Icesave skuldina.........maður spyr sig. Svo sagði annar að við skulduðum þeim ekkert, eftir að þeir dömpuðu öllum Range Roverunum á okkur......ég er bara orðin alveg rugluð í þessu öllu, hver skuldar hverjum að ég er löngu hætt að fylgjast með, það fer svo illa með heilsuna. En í dag er frídagur VERKALÝÐSINS...en sama á ekki við um aristókratana Nökkva og Nótt, þau eru í fullri vinnu ;)
Berglind Gestsdottir
