VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Drottningin lekur..........

16. maí 2011 klukkan 19:41
Tókum eftir því að Nóttin fagra virtist ekki halda vatni í dag. Ég hafði auðvitað samband við dýralækninn sem vildi sjá hana. Eins og sannur pro þá "greip" ég þvag hjá henni á leiðinni út í bíl í dollu.
Nótt hefur alltaf verið hraustari en allt, en nú grunaði mig að hún væri að koma sér upp þvagfærasýkingu.
Þvagið stixaðist svo algjörlega hreint. Engir leukocitar eða nitrit og eðlisþyngdin í lagi. EN Hanna vildi til öryggis setja hana á sýklalyf með tilliti til mögulegrar óléttu. Sónarnum var skellt á bumbuna með það í huga að skoða legið fyrir legbólgum, en þar var allt í sóma. Legið virtist aðeins stækkað en ekkert sem bendir til legbólgu, en gæti þýtt óléttu....allt of snemmt er fyrir sónarinn að sjá hvolpa.
Nótt er því áfram hreystin uppmáluð. Við fylgjumst svo vel með henni.

Fengum tíma í sónarinn hjá Hönnu og það er 6.júní kl. 13.
 
Berglind Gestsdottir