Valshamars hundum gekk vel á Úlfljótsvatni :)
VALSHAMARS MOCCA tók sig til og vann opna flokkinn hjá tíkunum með EXC og meistaraefni og var valin 3.besta tík sýningarinnar. Síðar sagði dómarinn að hún hefði unnið sýninguna ef hún hefði vitað hvað hún væri ung.
Valshamars Mocca verður ekki tveggja ára fyrr en í september.
Dómurinn hennar er líka glæsilegur.
Ég fékk eigendur Mocca til að skrá hana í opna flokkinn, þrátt fyrir að hún hefði frekar átt að vera í unghundaflokknum og greyið að keppa í fyrsta sinn. Ég hafði hinsvegar svo mikla trú á henni að ég skellti henni í opna flokkinn með ofangreindum árangri :)
Valshamars Castro gekk líka vel. Dómarinn var mjög hrifinn af honum og þótti hann glæsilegur.
Hann fékk glæsilegan dóm og VERY GOOD. ´
Ég er alsæl með súkkulaðimolana mína.
Svo er ég endalaust þakklát henni Ernu Þorsteinsdóttur sem sýndi hundana með svona góðum árangri. :)
Ég er á því að ég sé með hraustustu og fallegustu brúnu labradorana.
