PARVÓ.
03. ágúst 2011 klukkan 22:02
Fór með Nótt í Parvo sprautuna í dag. Hún fékk ormalyf í leiðinni. Er fílhraust og flottust :)
Á biðstofunni var fólk með "innikött" að þeirra sögn. Þau fengu þá frábæru hugmynd að kynna köttinn fyrir Nótt!
Veit ekki hvort varð hræddara kötturinn eða Nótt þegar kötturinn sem hvæsti fyrir allan peninginn og setti út allar klær..........veit ekki hvað fólkið var að hugsa. En sem betur fer var ég fljót að hugsa og kom líklega í veg fyrir snoppuslys á Nóttinni fögru.
Berglind Gestsdottir
