VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Góð helgi.

21. maí 2012 klukkan 14:15
Vorum í sveitinni um helgina. Veðrið var himneskt og Nótt laus og liðug. Hún lék sér við hana Pöndu vinkonu sína sem er Old English Sheepdog og hana Ynju sem er Chow Chow. Einnig varð svartur labrador rakki yfir sig ástfanginn af Nóttinni og sýndi afburða takta þrátt fyrir að vera steingeldur :)
 
Berglind Gestsdottir

Styttist í lóðarí.

15. maí 2012 klukkan 08:12
Nú held að það styttist í að daman lóði. Hún þurfti að merkja svakalega mikið í göngutúrnum í gær.
Mikið er veðrið flott :) 
Berglind Gestsdottir

Frjáls

21. apríl 2012 klukkan 20:53
Við fórum í sveitina.Þvílíkur dagur. Nóttin hljóp frjáls í allan dag, og brosti hringinn :) Hún lék sér með Pöndu sem er Old English Sheepdog og svo fór hún í sjósund með Míu sem er Ungversk Vizla. Ekki amalegt það.
Berglind Gestsdottir

Dröslast með fótboltann.

20. apríl 2012 klukkan 23:12
Veðrið var alveg meiriháttar í dag. Nótt spilaði fótbolta í langan tíma með mér og svo röltum við upp Miklubrautina saman og hún að sjálfsögðu í taumi. Hún vildi endilega taka fótboltann með og bar hann í kjaftinum alla leiðina.
Við vöktum athygli vegfarenda sem virtust hafa gaman af að sjá okkur á röltinu. Skemmtilegt. 
Berglind Gestsdottir

Hvar eru ruslatunnurnar.

17. apríl 2012 klukkan 14:11
Það er orðið hægt að telja grænu ruslaföturnar á annarri hendinni!. Ég labba fleiri kílómetra innan borgarmarkanna, og þarf iðulega að dröslast með ....pokann með mér aftur heim. Þetta er ekki í lagi.
Berglind Gestsdottir

Boltaleikur

12. apríl 2012 klukkan 13:51
Í dag er ég að vinna kvöldvakt, og því látum við duga boltaleik í garðinum :) Dásamlegur dagur. 
Likið okku á fb og þá sjáið myndir og skemmtilega texta :) 
Berglind Gestsdottir

Vor í lofti.

10. apríl 2012 klukkan 18:38
Við Nótt fórum í góðan göngutúr í dag. Sólin skein og ég á stuttermabol. :)
Berglind Gestsdottir

Páskarnir á næsta leyti. Passið páskaeggin.

04. apríl 2012 klukkan 12:41
Páskarnir eru að bresta á. Vil minna á að súkkulaði er ALLS EKKI fyrir hunda. Í súkkulaði er þeópróbín sem er hættulegt hundum.
Passið upp á að geyma pásaeggin hátt uppi!
Gleðilega páska.
Hi easter is around the corner. Take good care of the easter eggs/chocolate. Theoprobin in chocolate is a poison for dogs.
The darker the chocolate, more Theoprobin more dangerous.
Happy easter.
Berglind Gestsdottir

VOR

03. apríl 2012 klukkan 12:04

Það vorar og lengir daginn.  Hundar og menn gleðjast. Fylgist með okkur á facebook þar sem við hendum inn myndum og skemmtilegum textum :)   fb. Valshamars labradors.

Bestu kveðjur
Berglind  

Berglind Gestsdottir

FACEBOOK.

17. mars 2012 klukkan 11:05
Við erum líka á facebook :)  Valshamars labrador 
Berglind Gestsdottir