VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

MYNDATAKAN.

08. nóvember 2009 klukkan 16:34

Fólkið hennar Valshamars - Vöku kom í heimsókn í dag. Það er orðið svo fyndið að sjá hvað fólk verður hissa þegar það sér hvolpana. Þeir nefnilega nánast tvöfalda stærð sína á milli vikna Laughing

Ríkey kíkir á Donnu í kvöld eftir vinnu. Já það er ýmislegt á sig lagt, en hún á jú leið hjá á heimleiðinni.

Myndatakan verður á morgun og hefst kl. 11 og hvað hún tekur langan tíma veit enginn. Laughing 

Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir

GESTKVÆMT

07. nóvember 2009 klukkan 16:38

Já það er búið að vera góðmennt og gestkvæmt hjá okkur í dag. Hector, Stormur og Prins fengu heimsókn. Miklir fagnaðarfundir og mikið knúsað. Það er orðinn mikill spenningur hjá öllum að fá skottin heim, og allt að verða klárt á öllum heimilum. Ég er endalaust þakklát fyrir allar þær frábæru fjölskyldur sem taka að sér hvolpana úr þessu goti. :) Glöð og róleg mun ég afhenda þá full trausti á það að þeir fái endalausa ást, hlýju, aga, gott uppeldi og mikla hreyfingu.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

FLOTTASTIR

07. nóvember 2009 klukkan 01:02

Ég ætla nú bara að gerast svo gróf að áætla að ég sé með flottasta brúna gotið sem hefur komið í einhvern tíma. Ég er alveg svakalega ánægð með þetta got. Hvolparnir allir svo jafnir og líkamsbyggingin fín. Andlitsfríðleikinn er með ólíkindum..........Já sorry guys það styttist svo í að þeir fari til síns heima að ég geri lítið annað en dást að þeim þessa dagana, og reyni að festa þá í minni. Ég eiginlega trúi því ekki að það sé að koma sá tími að þeir fari frá mér.Frown Það verða teknar af þeim professional myndir eftir helgina. Það verður verkefni.
Kalli Bridde/Bláskógapabbi, kom og kíkti á okkur. 
Framundan eru heimsóknarhelgi. 

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Hm!!!!!! hvaða hljóð var þetta ??????

05. nóvember 2009 klukkan 12:42

Spurði Vaka mig um þegar við vorum við það að sofna í gærkvöldi.. .......æ veit ekki svaraði ég, en fannst samt eins og ég kannaðist við það. Ég hefði betur tékkað á þessu. Hliðið á gerðinu var sem sagt ólæst, og það var þegar hvolparnir uppgötvuðu það, þeyttu því upp í sameiningu og þustu út í frelsið........þegar við heyrðum þetta hljóð, en brugðumst ekki við. Ekki að þeir hefðu getað farið sér að voða þarna í skálanum. Langt frá því.........en verkunin maður minn í morgunn. Ég held að ég sé ekkert að fara nánar út í þá sálma, því fólk er mis klígjugjarnt. Jukk.

Það fóru sem sagt 2 klukkutímar í að skúra og skrúbba skálann, og skafa upp þið vitið.  Þetta kennir manni að bregðast alltaf strax við. Hvolparnir voru æðislega hressir í morgunn. Búnir að vera í svaka partýi í skálanum að djamma í alla nótt. Þeir voru svo glaðir að sjá mig eins og alltaf.........og auðvitað gat ég ekki skammað þá. ÞVÍ ÞETTA VAR MÉR AÐ KENNA!!!!!!!!!.

Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir

FÓRU ÚT.

04. nóvember 2009 klukkan 21:01

Hector, Freyja,Garpur og Mocca fóru út í garð. Í þetta sinn tvö og tvö saman. Hvolparnir eru nú líka farnir að vera meira tveir og tveir saman inni hjá okkur til að umhverfisvenjast og svoleiðis. 
Hector var t.d. inni hjá okkur áðan........hann er hress. Stökk inn í sjónvarps skápinn eins og ekkert væri. :) og út aftur. Hann er uber hress. :) Það er komin dagsetning á heilsufarsskoðunina. 11.11.09 kl. 1530. Hún Katrín dýralæknir kemur hingað heim til okkar með allar græjur. Þetta verður talsvert verkefni :)
Svo verð ég að nefna það hvað ég er ánægð með að allir sem vettlingi geta valdið ætla saman á námskeiðið í janúar. Þetta verður svo gaman.

Flensan er á undanhaldi og ég get ekki beðið eftir að komast út!.

Nýjar myndir undir: ÝMSAR MYNDIR.

 

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Já ÞAU ERU 6 VIKNA Í DAG.

03. nóvember 2009 klukkan 17:37

Afmælisbörn......eða þannig :) Voða spræk á afmælisdaginn eins og aðra daga. Carmel Donna, Bokki,Stormur og Vaka fóru út í dag........í taumi skal ég segja ykkur. Eitt í einu með mömmu sinni, og fengu að skoða garðinn. Prófa að ganga á grasi, mold og grjóti. Allt alveg hrikalega skemmtilegt og ekkert þeirra vildi koma inn aftur. :)
Þau fylgdu öll vel og voru ekkert ósátt við tauminn. :) 

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

HVOLPANÁMSKEIÐ

03. nóvember 2009 klukkan 11:24

Sæl veriði. Okkur býðst að komast á sér hvolpanámskeið  fyrir gotið í byrjun janúar, hjá einum virtasta og vinsælasta hundaþjálfara landsins. Það væri ótrúlega gaman að megnið af gotinu yrði saman á námskeiði. Hvað segið þið um það :)


 
Berglind Gestsdottir
3 athugasemdir

SNEMMA BEYGIST KRÓKURINN

02. nóvember 2009 klukkan 18:16

Ég hef tekið eftir því að hvolparnir drösla öllu sem skiptir þá máli inn í búrin. Þeir draga á eftir sér tóma matardallana. Bangsana, nagbeinum og nú síðast heilli rjúpu.

Já hún Valshamars - Vera /Carmel Donna veigraði sér ekki við því að drösla með sér heilli rjúpu sem er ekki mikið minni en hvolpaskottið sjálft inn í búrið. 
Hvolparnir fá að kynnast rjúpnalyktinni þar til þeir fara frá okkur. :) 

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

MARLEY AND ME

02. nóvember 2009 klukkan 15:01

Ligg hér eins og skata og horfi á eina af uppáhalds myndunum mínum  Marley and me......Laughing sem  mér finnst vera skylduáhorf allra sem eru að fá sér hund í fyrsta skiptið. 

Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

NÝJAR MYNDIR.

01. nóvember 2009 klukkan 16:54

Setti inn myndir sem Auður sendi mér af Líf/CoCo og af Orion/Prins sem hún Elísabet sendi mér  og myndir af Veru/Donnu sem hún Ríkey tók og myndir sem hann Ólafur tók Takk guys. :) 
Hrikalega flottar myndir. Heimsóknum helgarinnar er lokið. Ég verð að biðjast forláts á því hvað ég var ömurleg í gestamóttökunni. Ég hef bara ekki lengi orðið svona lasin. Meiri ógeðs pestin þessi flensa.

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd