22. júlí 2011 klukkan 14:32
Nóttin fagra dvelur mest þessa dagana utan borgarmarkanna undir Valshamri þar sem okkur líður svo best. Nótt er á fullu allan daginn og er í svaka formi.
Þar leikur hún við vinkonu sína Pöndu sem er fjórum árum yngri en miklu stærri og er af kyninu Old English sheepdog. Þær svo fínar saman. Veðrið er búið að vera frábært svo vægt sé til orða tekið.
Hafið það alveg ljómandi. Njótið þess að vera til :)
Berglind Gestsdottir
09. júlí 2011 klukkan 11:18
VALSHAMARS MOCCA tók sig til og vann opna flokkinn hjá tíkunum með EXC og meistaraefni og var valin 3.besta tík sýningarinnar. Síðar sagði dómarinn að hún hefði unnið sýninguna ef hún hefði vitað hvað hún væri ung.
Valshamars Mocca verður ekki tveggja ára fyrr en í september.
Dómurinn hennar er líka glæsilegur.
Ég fékk eigendur Mocca til að skrá hana í opna flokkinn, þrátt fyrir að hún hefði frekar átt að vera í unghundaflokknum og greyið að keppa í fyrsta sinn. Ég hafði hinsvegar svo mikla trú á henni að ég skellti henni í opna flokkinn með ofangreindum árangri :)
Valshamars Castro gekk líka vel. Dómarinn var mjög hrifinn af honum og þótti hann glæsilegur.
Hann fékk glæsilegan dóm og VERY GOOD. ´
Ég er alsæl með súkkulaðimolana mína.
Svo er ég endalaust þakklát henni Ernu Þorsteinsdóttur sem sýndi hundana með svona góðum árangri. :)
Ég er á því að ég sé með hraustustu og fallegustu brúnu labradorana.
Berglind Gestsdottir
19. júní 2011 klukkan 19:12
Hún Valshamars Vera/DONNA leitar að góðu fósturheimili í ca 6 mánuði. Donna verður 2 ára 22.september. Ef þið vitið um gott heimili fyrir hana þá endilega verið í sambandi við hana Ríkey í síma 8922219. Hún gefur ykkur frekari upplýsingar.
Berglind Gestsdottir
16. júní 2011 klukkan 20:40
Búi þeir í þéttbýlinu og fjölskyldan með bæjarferð á prjónunum. Hundar hafa ekki ánægju af hávaða, kraðaki og þrengslum.
Berglind Gestsdottir
16. júní 2011 klukkan 00:31
Nóttin mín fagra á 5 ára afmæli í dag :) Hraust og dásamleg.
Berglind Gestsdottir
13. júní 2011 klukkan 14:30
Nottin hljop frjals ferda sinna alla helgina i sveitinni um fjoll og firnindi og synti i am og sjo. Vedrid var gudomlegt.Svona viljum vid hafa lifid.
Berglind Gestsdottir
06. júní 2011 klukkan 14:24
Skv. sonarnum saust engir hvolpar hja Nottinni fogru i thetta sinn. Nott lodar naest i november og ta endurtokum vid porunina.
Endilega sendid mer post og latid mig vita hvort tid viljid vera afram a lista. Vid Nott dembum okkur i sumarid og tokum hressilega a tvi.
Hafid thad aedislegt i sumar oll somul. Eg mun skrifa herna inn a hvad vid Nott erum ad bardusa til gamans.
Berglind Gestsdottir
06. júní 2011 klukkan 09:31
Berglind Gestsdottir
05. júní 2011 klukkan 16:41
Er svo ánægð með daginn :) Valshamars Líf/DIMMA stóð sig frábærlega í umsjón hennar Auðar í dag.
Dimma varð í 3.sæti í unghundaflokknum og fékk Very good...sem þótti mjög flott í dag :) Umsögnin hennar var líka alveg til að vera montin yfir. Hún fór svo í augnskoðun og er með Excellent augu og engin merki um arfgenga sjúkdóma. Ég tók þetta fína video af þeim stöllum.......sem virðist ekki vilja hlaðast inn, en ég hætti ekki að reyna fyrr en í fulla hnefana. Ég vonast svo eftir myndum af Dimmu og set þær um leið inn.
Það var líka gaman í stúkunni þar sem við sátum í hnapp ræktendurnir. Það var góð stemmning í hópnum. :)
Berglind Gestsdottir
04. júní 2011 klukkan 22:40
Ég hlakka mikið til að sjá hana Dimmu í hringnum. Hún og Auður verða flottar saman. :) Ég mæti kl. 09
Berglind Gestsdottir