VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

RETRO.........

16. maí 2011 klukkan 01:38

Er flott nafn :)

Berglind Gestsdottir

Eru spenarnir að stækka.

14. maí 2011 klukkan 23:30

...................

Berglind Gestsdottir

SVO TILLITSÖM

09. maí 2011 klukkan 19:50
Hjá okkur er lítill drengur í heimsókn aðeins fjögurra mánaða gamall. Það er magnað að horfa á hversu tillitsöm Nótt er. Hún tekur stóran krók framhjá honum ef hann liggur á gólfinu og það hvarflar ekki að henni að koma nálægt dótinu hans. Ef hann grætur.........þá forðar hún sér í skjól :)
Berglind Gestsdottir

DROTTNINGUNNI VAR HEITT Í DAG.

08. maí 2011 klukkan 22:43
Mikið var þetta dásamlegur dagur. Vonandi gátu allir notið hans. 


 
Berglind Gestsdottir

DAGUR 15

04. maí 2011 klukkan 20:23
Þá hefst biðin..............Við munum heimsækja Dýraspítalann 4.júní........
Berglind Gestsdottir

14.DAGUR.

03. maí 2011 klukkan 09:56
Nótt mun taka því rólega í dag.Við ætlum að vera úti í garði að vinna vorverk. Á morgun hittir hún svo Nökkva í síðasta sinn.
Berglind Gestsdottir

13.DAGUR.

02. maí 2011 klukkan 20:54
Þá fer að líða að biðinni löngu. Það er fyrst eftir 30 daga sem við sjáum hvort það eru hvolpaskott.
Berglind Gestsdottir

1.MAÍ DAGUR 12

01. maí 2011 klukkan 13:06

Það er 1.maí og ég er aftur búin að taka fram North Face úlpuna og gúmmístígvélin.  Einhver sagði við mig að sumarið hefði verið tekið upp í Icesave skuldina.........maður spyr sig. Svo sagði annar að við skulduðum þeim ekkert, eftir að þeir dömpuðu öllum Range Roverunum á okkur......ég er bara orðin alveg rugluð í þessu öllu, hver skuldar hverjum að ég er löngu hætt að fylgjast með, það fer svo illa með heilsuna. En í dag er frídagur VERKALÝÐSINS...en sama á ekki við um aristókratana Nökkva og Nótt, þau eru í fullri vinnu ;)

Berglind Gestsdottir

TIL GAMANS.

30. apríl 2011 klukkan 23:10
2007 í Fossatúni í Borgarfirði mætti ég með fallegu Nóttina mína á sýningu, þar sem henni gekk vægast sagt mjög vel. Það sem er nú samt skemmtilegast við  þessa sýningu og skiptir máli í dag.....er að Nótt var valin besta tíkin og keppti því við besta rakkann....sem var SKAFTÁR CERES/ NÖKKVI :) Þau öttu svo kappi um besti hundur sýningar og það var ekkert flóknara en svo að Nótt vann hann. Það er því ekki leiðinlegt að para saman tvo svona glæsilega hunda.
Ég bjó til albúm þar sem ég setti inn sitthvora myndina af Nótt og Nökkva sem var tekin á þessum tíma.
 
Berglind Gestsdottir

DAGUR 11

30. apríl 2011 klukkan 13:31
Nökkvi er hjá okkur í dag. Nótt er nú farin að standa fyrir hann og þá reikna ég með að hlutirnir fari að gerast.
Kappinn farinn heim . Næsti hittingur á morgunn.
 
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd