29. apríl 2011 klukkan 23:09
Berglind Gestsdottir
28. apríl 2011 klukkan 15:48
Blóðprufa sýnir hækkun á progesteroni sem þýðir að Nótt fer að detta í egglos. Hún var þó ekki tilbúin áðan þegar Nökkvi kom í óvænta heimsókn,heldur settist hún á rassinn og gelti hvellt á hann. :) Þau munu hittast reglulega á næstunni.
Berglind Gestsdottir
28. apríl 2011 klukkan 13:53
Þar sem við erum flutt í miðbæinn, fannst mér viðeigandi að heimsækja dýralækni í nágrenninu. Finnst nauðsynlegt að vita af einum slíkum við túnfótinn ef eitthvað kemur upp á. Við heimsóttum Helgu Finnsdóttur. Hún tók strok hjá Nótt og blóðprufu, og við bíðum nú eftir niðurstöðum hvar hún er stödd í egglosferlinu, set það inn á eftir.
Nótt og Nökkvi byrja að hittast á morgunn.
Hann Kjartan vinur minn hjá Propac kom við hjá mér með mat fyrir Nóttina. Alltaf jafn yndislegur.
Langar til að benda á heimasíðu Helgu Finns. www.dyralaeknir.com þar eru ýmsar fróðlegar greinar sem vert er að kynnar sér.
Berglind Gestsdottir
27. apríl 2011 klukkan 16:49
Nótt fékk góða viðrun í dag. Taumgöngu og svo leik með bolta sem þó er alltaf sækivinna og skila. Öllu gamni fylgir einhver alvara.
Það er um Nökkva að segja að hann er mikill veiðihundur og hefur farið í ófáa túrana og sótt ansi marga fugla.
Berglind Gestsdottir
26. apríl 2011 klukkan 11:43
Nótt gerist leitarhundur í dag ;) Vinkona Vöku týndi úrinu sínu á einhverjum leikvellinum, og það verður missionið okkar í dag að finna það. :)
Berglind Gestsdottir
25. apríl 2011 klukkan 17:46
Þvílíkt geðslag. Algjör draumaprins. Ég skoðaði rakkann mjög nákvæmlega og hann er hraustur yfirvegaður og dásamlegur. Sat í góðu yfirlæti með eigandanum og áttum gott spjall, meðan ég fylgdist með rakkanum.
Ég tók nokkrar myndir sem eru ekki nógu góðar en á von á betri myndum sendum frá eigandanum.
Berglind Gestsdottir
24. apríl 2011 klukkan 14:31
Gleðilega páska öll sem fylgist hér með. Veðrið er svo bilað..........að við Nótt erum bara heima og höfum það kósý.Bætum úr því á morgun. JÁ! aldrei er gömul vísa of oft kveðin. SÚKKULAÐI er hættulegt hundum.
Passið páskaeggin.
Berglind Gestsdottir
23. apríl 2011 klukkan 18:43
Algjörlega óþolandi.Lausaganga hunda á Seltjarnarnesi ógnar varpi fugla.
Berglind Gestsdottir
23. apríl 2011 klukkan 11:55
Lóðatíkur eru ekki vel séðar í hópgöngutúra.......þannig að við förum bara í okkar eigin tveggja manna göngutúr.
Við förum þá bara næst með Retriever hópnum, sem verður í maí. Ég vona að það verði góð mæting í Nauthólsvíkina.
Annars er stefnan hjá mér að reyna að heimsækja draumaprinsinn hennar Nætur.
Berglind Gestsdottir
22. apríl 2011 klukkan 21:47
Já góður dagur að baki. Það styttist í að hitt og þetta megi ekki, þannig að Nótt fékk frábæra útivist í dag. Við heimsóttum Míu Vizlu í Hvalfjörðinn í dag. Þar var synt í sjónum og hlaupið um víðan völl. Fátt er eins gott og sjóbað.
Lyktin af drottningunni var þó ekki mjög góð eftir daginn, og fékk hún því gott bað þegar heim var komiið.
Nú liggur hún alsæl og slök eftir góðan dag og góða kvöldmáltíð ........kjúkling og hrísgrjón.
Berglind Gestsdottir