VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Fer að sjá hvolpana hans Dóra

03. apríl 2008 klukkan 13:15
Jæja. eins og alltaf þá erum við í vinnunni............boring. Je hvað ég væri til í að vera heimavinnandi. En hvað um það. Ég er svo spennt. Er að fara í kvöld og sjá hvolpana hennar Sölku/Dóra að byrja á námskeiði.Hvað er sætara en hvolpa skott sem eiga að fara hlýða einhverjum skipunum......Krúttlegast í heimi. Fer beint eftir vinnu. Svo er planið að þrífa þegar ég kem heim. Vitiði það eru flísar á öllu heima, og það er snilld þegar maður er með hunda. Svo þægilegt að þrífa og engar áhyggjur af að parket verði uppspólað.
Meira í kvöld.Hlæjandi
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

HÆ STEINI!

02. apríl 2008 klukkan 22:21
Þú ert fyrirmyndin mín í veiðinni!. Steini snilli. Gaman að heyra frá þér. Ég varð bara svo skelfingu lostinn upp við Silungapoll, að ég bara verð máttlaus við tilhugsunina. Ha,ha.
Annars var ég að koma inn. Fór út í rúman hálftíma með hundana. Það er snaarvitlaust veður, en í fínu að ganga ef maður er rétt klæddur. Sumir mundu nú  segja að það væri ekki hundi út sigandi.Hlæjandi
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Hef gaman af strákunum í veiðinni.

02. apríl 2008 klukkan 15:13
Brosandi Þeir eru svo bjartsýnir og hvetjandi strákarnir í veiðinni. En þeir gera sér enga grein fyrir því hvað það er erfitt að horfa á þá stýra hundunum eins og þeir gera það. Þvílíkir snillingar. Svo eru þeir svo almennilegir, segja að sé allt í lagi að fá 0 og svona á veiðiprófi. það mundi nú keppnisskapið í mér ekki þola. Ég ætla að kíkja á veiðiprófið í Hvammsvíkinni þegar það verður. Horfa á og verða neongræn af öfund.Glottandi
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Hálf vindlaus í dag.

01. apríl 2008 klukkan 23:01
Fékk slæmar fréttir í dag. Aldraður frændi minn liggur fárveikur á sjúkrahúsi á Kanaríeyjum. Þetta er mikill uppáhaldsfrændi sem mér þykir mjög vænt um. Fyrir mér er hann eilífur, en er það ekki. Ég heimsótti eftir vinnu aldraða systir hans og frænku mína einnig sem mér þykir rosa vænt um.  Við Nótt komum því ekki heim fyrr en um kl. 21. Ég fékk mér að borða og var í huganum búin að salta göngutúr dagsins,en eins og alltaf finn ég að það muni gera mér gott að taka aðeins á því.
Kraftgekk góðan Mosó hring og hvuttarnir hlupu með. Nótt fékk svo kvöldmatinn sinn og núna erum við að slaka á.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Göngutúrar sem taka í lærin.

31. mars 2008 klukkan 20:31
Ég er búin að uppgötva, að mér finnst skemmtilegri göngutúrarnir sem taka í lærin. Ég stóð mig ekki vel í dag
Fór á Lágafellið og reyndi að fara upp þar sem var nokkuð bratt. Þetta tók um hálftíma. Þá var Vaka farin að sífra. Þreytt í löppunum, illt þarna osfrv. Glottandi Hún er nú bara 5 ára ræfillinn. Ég þarf að fara meira ein,þá get ég tekið á eins og ég vil.
Horfði á Esjuna löngunaraugum, en lét þetta duga í dag...............Kannski á morgunn, hver veit.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Laugardags og sunnudags blogg

30. mars 2008 klukkan 17:12
Við Nótt vorum að vinna í Trippen frá 12 - 16 á laugardaginn. Fórum yfir nokkrar hlýðniæfingar, meðan var rólegt. Komum heim. Skellti mér í gallann og á bakið, bakpoka með ca 10kg í  Gekk  ansi góðan hring, og leitaði uppi brekkur og hæðir sem tækju aðeins í lærin. Yndislegt.
Sunnudagur. Keyrði inn i Skammadal með hundana, og þar upp á Helgafell. Rokið þarna uppi var gífurlegt. Ég stóð varla í lappirnar....og ég er nú ekkert léttmeti sko. Svalur Aftur til baka. skilaði bilnum heim og tókum góðan hring á opnu svæði við Varmána.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Föstudagsleti

28. mars 2008 klukkan 23:24
Við Nótt í vinnunni í dag. Komum heim. Nótt og Tumi fóru út í garð  í fótbolta með stelpunum. Ég hljóp yfir hin klassísku húsverk, steikti hamborgara og pizzur ofan liðið, gaf síðan hundunum að borða. Ég var búin að ákveða að hvíla í kvöld. Enginn göngutúr......skellti mér í sjónvarpssófann, en var ekki róleg. Kl.22 gafst ég upp. Í gallann og út. Fór góðan hring í taumgöngu og svo lausahlaup og boltaleikur á eftir. Heim. Vatn handa hundunum og sturta fyrir mig. Er aftur komin í sjónvarpssófann og nú er ég SÁTT.Hlæjandi
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Leiðindaveður

27. mars 2008 klukkan 22:22
Jæja. Taum gengum ca 5 km. Að heiman út að Lágafellslaug og til baka.Veðrið var svona.......ekki eins og það sé að koma vor. Frekar eins og um hávetur. Frosið beit í kinnarnar, hálka, snjór og rok.......eins og segir í 10 veðurfréttunum. Norðaustan átt, og engar líkur á hlýju lofti á leiðinni til landsins. SO! við bara klæðum okkur vel!Hlæjandi
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Mirror coat, Halti og The dog trainer tutor

27. mars 2008 klukkan 10:31
Sko......er sjálfsagt ímyndun, en mér finnst eins og það hafi dregið úr hárlosi á bænum. Ég setti bara allt stóðið (Tuma,Nótt og Gest (köttinn) á þetta og ég hef ekki þurft að ryksuga á hverjum degi þessa viku....thats for sure. Mirror coat er að virka.
Og Halti. Vaka 5 ára getur gengið með Nótt í taumi........undir eftirliti að sjálfsögðu, án nokkurra erfiðleika. Halti er snilld.
Svo var ég að fá mér The dog trainer tutor. Snilldar hundabók (download á netinu.) Brand new.
Hvert ætti maður að labba í dag.?      Skoða kortin í dag vel mér góða leið.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

6 km

26. mars 2008 klukkan 23:11


Nótt var með mér í TRIPPEN í dag. Viðskiptavinirnir voru yfir sig hrifnir af henni , "þvílík fegurð" hrópaði ein og allir hrósuðu henni mikið fyrir það hversu stillt  og prúð hún er.......hm veit nú ekki hvað skal segja um það, en það er eiginlega hálf dularfullt hversu prúð hún er þessa dagana. Eins og draumur í dós........en það gæti verið að öll hreyfingin skýri hegðunina eitthvað. Vitiði! Tumi YFIR GELTARI, er miklu rólegri og prúðari líka.....og ég er viss um að það eru líka löngu göngutúrarnir sem ég tek hann orðið alltaf með í, því honum finnst þetta geðveikt....ég hélt alltaf að hann væri of lítill í langar göngur og hvað þá á fjöll. Nei minn er sko alltaf fremstur í flokki. Tumi er sko 3 ára tjúi.

Fórum 6 km. Langan og fallegan hring. Nótt svamlaði í Varmánni og naut sín í botn. Tumi,Vaka og Víðir fóru með. Horfi nú á Helgafellið sem væntanlegt markmið.
Er farin að hugsa til sumarsins og langar að labba Laugaveginn með liðið.....nei ekki þann Laugaveg. LAUGAVEGINN!Hlæjandi
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd