31. mars 2008 klukkan 20:31
Ég er búin að uppgötva, að mér finnst skemmtilegri göngutúrarnir sem taka í lærin. Ég stóð mig ekki vel í dag
Fór á Lágafellið og reyndi að fara upp þar sem var nokkuð bratt. Þetta tók um hálftíma. Þá var Vaka farin að sífra. Þreytt í löppunum, illt þarna osfrv.

Hún er nú bara 5 ára ræfillinn. Ég þarf að fara meira ein,þá get ég tekið á eins og ég vil.
Horfði á Esjuna löngunaraugum, en lét þetta duga í dag...............Kannski á morgunn, hver veit.
Berglind Gestsdottir
30. mars 2008 klukkan 17:12
Við Nótt vorum að vinna í Trippen frá 12 - 16 á laugardaginn. Fórum yfir nokkrar hlýðniæfingar, meðan var rólegt. Komum heim. Skellti mér í gallann og á bakið, bakpoka með ca 10kg í Gekk ansi góðan hring, og leitaði uppi brekkur og hæðir sem tækju aðeins í lærin. Yndislegt.
Sunnudagur. Keyrði inn i Skammadal með hundana, og þar upp á Helgafell. Rokið þarna uppi var gífurlegt. Ég stóð varla í lappirnar....og ég er nú ekkert léttmeti sko.

Aftur til baka. skilaði bilnum heim og tókum góðan hring á opnu svæði við Varmána.
Berglind Gestsdottir
28. mars 2008 klukkan 23:24
Við Nótt í vinnunni í dag. Komum heim. Nótt og Tumi fóru út í garð í fótbolta með stelpunum. Ég hljóp yfir hin klassísku húsverk, steikti hamborgara og pizzur ofan liðið, gaf síðan hundunum að borða. Ég var búin að ákveða að hvíla í kvöld. Enginn göngutúr......skellti mér í sjónvarpssófann, en var ekki róleg. Kl.22 gafst ég upp. Í gallann og út. Fór góðan hring í taumgöngu og svo lausahlaup og boltaleikur á eftir. Heim. Vatn handa hundunum og sturta fyrir mig. Er aftur komin í sjónvarpssófann og nú er ég SÁTT.
Berglind Gestsdottir
27. mars 2008 klukkan 22:22
Jæja. Taum gengum ca 5 km. Að heiman út að Lágafellslaug og til baka.Veðrið var svona.......ekki eins og það sé að koma vor. Frekar eins og um hávetur. Frosið beit í kinnarnar, hálka, snjór og rok.......eins og segir í 10 veðurfréttunum. Norðaustan átt, og engar líkur á hlýju lofti á leiðinni til landsins. SO! við bara klæðum okkur vel!
Berglind Gestsdottir
27. mars 2008 klukkan 10:31
Sko......er sjálfsagt ímyndun, en mér finnst eins og það hafi dregið úr hárlosi á bænum. Ég setti bara allt stóðið (Tuma,Nótt og Gest (köttinn) á þetta og ég hef ekki þurft að ryksuga á hverjum degi þessa viku....thats for sure. Mirror coat er að virka.
Og Halti. Vaka 5 ára getur gengið með Nótt í taumi........undir eftirliti að sjálfsögðu, án nokkurra erfiðleika. Halti er snilld.
Svo var ég að fá mér The dog trainer tutor. Snilldar hundabók (download á netinu.) Brand new.
Hvert ætti maður að labba í dag.? Skoða kortin í dag vel mér góða leið.
Berglind Gestsdottir
26. mars 2008 klukkan 23:11
Nótt var með mér í TRIPPEN í dag. Viðskiptavinirnir voru yfir sig hrifnir af henni , "þvílík fegurð" hrópaði ein og allir hrósuðu henni mikið fyrir það hversu stillt og prúð hún er.......hm veit nú ekki hvað skal segja um það, en það er eiginlega hálf dularfullt hversu prúð hún er þessa dagana. Eins og draumur í dós........en það gæti verið að öll hreyfingin skýri hegðunina eitthvað. Vitiði! Tumi YFIR GELTARI, er miklu rólegri og prúðari líka.....og ég er viss um að það eru líka löngu göngutúrarnir sem ég tek hann orðið alltaf með í, því honum finnst þetta geðveikt....ég hélt alltaf að hann væri of lítill í langar göngur og hvað þá á fjöll. Nei minn er sko alltaf fremstur í flokki. Tumi er sko 3 ára tjúi.
Fórum 6 km. Langan og fallegan hring. Nótt svamlaði í Varmánni og naut sín í botn. Tumi,Vaka og Víðir fóru með. Horfi nú á Helgafellið sem væntanlegt markmið.
Er farin að hugsa til sumarsins og langar að labba Laugaveginn með liðið.....nei ekki þann Laugaveg. LAUGAVEGINN!
Berglind Gestsdottir
26. mars 2008 klukkan 11:51
Set þetta inn núna, svo ég verði að standa við það.........stefni á 5 km göngu í kvöld. Það er alltaf gott að setja sér markmið ER ÞAÐ EKKI!

Veit að Nótt er klár í slaginn og Tumi slær örugglega til líka.
Já og svona til að fylgjast með. Þá var ég að breyta um mat hjá Nótt. Hún fær núna fitu og próteinríkari mat frá PROPAC
vegna þess hversu mikið hún er hreyfð. Ágætt að minnast á það að hún hefur verið á PROPAC frá því hún fæddist, og ég er alveg rosalega ánægð með þann mat og þjónustan er sú besta sem getur orðið.
www.snati.is
Berglind Gestsdottir
25. mars 2008 klukkan 21:43
Skelltum okkur á Lágafellið, og röltum í um einn og hálfan tíma.......og vitiði hvað! HALTI er SNILLD. Virkar strax, og þvílíkur munur á taumgöngu. Ég verð að fara að græja myndavélina. Við máttum þakka fyrir að sérsveit lögreglunnar var ekki i nágrenninu. Vegna kuldans vorum við öll frekar svona terroristaleg með buff fyrir andlitunum út af kuldanum. Þarf að ná þessu á mynd, örugglega fyndin sjón. ha,ha.
Berglind Gestsdottir
25. mars 2008 klukkan 16:07
Jæja aftur er alveg hriiiiiiiikalega kalt. Við Nótt erum í vinnunni (TRIPPEN). og ég er að telja í mig kjarkinn í vasklegan göngutúr í kvöld. Ég keypti Halti taum á Nótt í morgunn. Hún er nefnilega svo mikill "togari" og ég nenni því ekki lengur.
Prófaði að setja múlinn á hana og átti allt eins von á að hún yrði alveg snar, en hún er alltaf sama ljósið. Lét hana vera með múlinn í svona 15 mínútur og tók hann af þegar hún var róleg og svaf. Það verður gaman að sjá hvernig gengur í kvöld........
Berglind Gestsdottir
24. mars 2008 klukkan 17:47
Þetta hljómar eins og við séum að hæðar aðlaga okkur.......eins og við séum að reyna að komast á Everest.

Fórum upp að Kögunarhól. Lengra tryesti ég mér ekki með Vöku. Það var snjór og hálka á köflum og ekki alveg öruggt.
Ég hefði verið til í að fara lengra og þurfti ekki að spyrja hundana, sem voru drullugir upp fyrir haus. Göngufólk sóttist í að mynda Tuma, sem skokkaði í hettupeysunni sinni þvílíkur töffari.
Svo var það sturta á línuna. Enginn húsum hæfur af drullu.
Berglind Gestsdottir