22. apríl 2011 klukkan 13:08
Nótt er svo væmin þessa dagana :) að tekið er eftir. Þessi elska sættir sig við allt ...líka ömurlegu lóðabuxurnar, sem elsti minn spurði hvort væru tailor made fyrir hana, því hann hreinlega tók ekki eftir því að hún væri í þeim :)
Hún fær að vera laus við þær á næturna og þegar við erum úti í taumgöngu. Ekkert til sem heitir lausaganga þessa dagana. Sem gott dæmi um hversu vel maður þarf að passa lóðatíkur er, að, á miðnætti í fyrrakvöld fór ég út í myrkrið með Nótt í taumi að pissa fyrir nóttina. Ég stóð þarna í rólegheitum og Nótt að sinna sínu þegar inn í garðinn kemur hreinlega fljúgandi svartur labrador rakki og það engin smásmíði. Hann gerði sig strax líklegan til að stökkva á hana og ég mátti hafa mig alla við að bægja honum frá. Eigandinn kom svo hlaupandi að ná í hann.
Þessi rakki er "nágranni" minn.....og það styttist í að eigandinn fái kvörtun.
Rakkinn ásamt fleiri hundum í því húsi eru nefnilega lausir í garðinum, og því er stöðugt haldið fram að þeir fari aldrei út úr garðinum.............mér er aftur á móti orðið nóg boðið. Inni í minn garð koma þessir rakkar og merkja og mér finnst ég aldrei örugg með mína tík. Þeir fara nefnilega úr garðinum svo mikið er víst.
Ég er nýflutt í miðbæ Reykjavíkur og ég hef ALDREI séð eins mikla lausagöngu hunda.
Gerið það fyrir mig þið sem eigið hunda að hafa þá í taumi. Virðið umhverfið og aðra. Passið upp á hundana ykkar.
Mér verður líka oft hugsað til þessa nágranna minna, sem eiga þessa hunda sem eru lausir......hverjum mundu þeir kenna um ef keyrt yrði á hundana þeirra?
Berglind Gestsdottir
21. apríl 2011 klukkan 11:52
Nótt tekur svona tíu skref og svo þarf hún alveg bráðnauðsynlega að merkja. Það hlýtur að vera spaugilegt að sjá okkur á ferðinni þegar ég skunda áfram og svo sest hún allt í einu og ég rykkist til baka.
Nótt er nú á degi 2.
Berglind Gestsdottir
20. apríl 2011 klukkan 21:38
Fyrsti dagur lóðarís. Spennan eykst.
Berglind Gestsdottir
19. apríl 2011 klukkan 10:54
Við Nótt ætlum að skella okkur í skemmtilega göngu :) Já það get ég sagt ykkur að þetta var gaman.
Þær eru fallegar systurnar og ofsalega ólíkar. Mocca er að vaxa svo fallega upp. Hún er með höfuðlagið hans Henrys og virðist hafa geðslagið frá honum líka. Frábært að sjá hvað hún var flott í taumgöngu með Gunnhildi.
Ég "reyndi" að taka myndir....af þeim hlaupandi út um allt, og einbeitti mér að því að ná myndum af Mocca.
Smá mont :) það stoppaði maður og spurði okkur út í hundana og dáðist að þeim.....svo sem ekkert nýtt fyrir okkur :) he,he.
Berglind Gestsdottir
18. apríl 2011 klukkan 16:46
Nótt flaug í gegnum heilbrigðisskoðunina. Dýri sagði hana, eftir skoðun og allskyns þreifingar, hrausta og í flottu formi. Nótt hefur einfaldlega alltaf verið hraust og ekki orðið misdægurt. Ég vil meina að það sé auðvitað fyrir alla ástina og umhyggjuna, en ekki síst það að hún hefur verið frá fæðingu á sama matnum frá PROPAC, sem virðist vera kjör maturinn fyrir hana og hennar hreysti.
Bólusetningin hennar er enn í gildi, þannig að hún fékk nokkur stykki ormahreinsitöflur í kæfu :)
Berglind Gestsdottir
18. apríl 2011 klukkan 14:48
Ætla að kíkja í Víðidalinn með Nótt í heilbrigðisskoðun, ormahreinsun og svoleiðis.
Berglind Gestsdottir
17. apríl 2011 klukkan 21:33
Saturday, April 23 at 1:00pm at Ylströndin í Nauthólsvík
Berglind Gestsdottir
17. apríl 2011 klukkan 14:32
Góður morgunn í Sólheimakoti. Albert fræddi okkur um hlýðni og þar kom t.d. fram að versti óvinur hælgöngu þjálfunar er FLEXITAUMURINN, enda hefur mér alltaf fundist það alveg fáránlegt fyrirbæri...sérstaklega á stóra hunda. Eftir skemmtilegan fyrirlestur fórum við út í æfingar, sem reyndu jafn mikið á hunda og eigendur. Afskaplega gott mál.
Mætingin var góð um 20 hundar og að sjálfsögðu alla vega jafn mikið af fólki ef ekki bara aðeins fleiri :)
Veðrið lék við okkur. Myndirnar af okkur tók hún Sólrún Dröfn :) Sólrún tók fullt af myndum sem sjá má inni á fb. retrieverdeild hrfi
Berglind Gestsdottir
16. apríl 2011 klukkan 12:15
ALBERT HUNDAÞJÁLFARI Verður með léttan fyrirlestur um hlýðni og retriever hlýðni. Svo röltum við á eftir.
Vonast til að sjá sem flesta VALSHAMARS HUNDA OG FÓLK :)
Berglind Gestsdottir
15. apríl 2011 klukkan 17:54
Valshamars Vaka er að lóða og getur því ekki verið með okkur á sunnudaginn. Ég ætla því að heimsækja hana á morgunn. Hennar fjölskylda var að fá nýjan fjölskyldumeðlim...lítinn kettling, sem hún er víst svo yndislega góð við. :) Vaka verður tveggja ára í september. Ætla að grípa með mér myndavél.
Valshamars-Skuggi getur heldur ekki verið með okkur á sunnudaginn. Hann býr í Vestmannaeyjum. Það er líka gaman að segja frá því að hann er nýbúinn að eignast "bróðir" Cavalier hvolp sem hann fer svo ofur varlega að,og eins og Vaka leyfir litla dýrinu að djöflast í sér endalaust. Ég er svo ánægð með geðslagið í þessum hundum frá mér :)
Berglind Gestsdottir