23. mars 2008 klukkan 17:31
Rigningarúði......besta gönguveðrið. Gengum áleiðis á Esjuna. Fórum nú ekki langt því amma var með

Förum alla leið næst. Nótt passaði vel upp á að allir væru með og í lagi. Nótt fann sér læki til að sulla í og varð drullug upp fyrir haus. Þetta er LÍFIÐ! Nú bíður Nótt eftir Míu/Vizlu sem er að koma í páskamat með fjölskyldunni sinni. Þá verður líf í tuskunum.
Berglind Gestsdottir
23. mars 2008 klukkan 00:34
Fórum upp á Skaga í dag. Horfðum á Snædísi Óla keppa á hestinum Kulda. Hún stóð sig auðvitað með mikilli prýði. Það er alltaf gaman að sjá flotta hesta og góða knapa.
Síðan var kíkt á kaffihús á Akranesi. Þaðan í sund. En við Nótt,Tumi,Unnur og Snædís völdum að fara í fjöruferð. Það var nú skemmtilegt. Nótt sótti bolta í sjóinn alveg út í eitt, og Tumi stóð á gólinu af áhyggjum þegar hún lét vaða í öldurnar

.
Dagurinn endaði að kveldi kominn í Kjósinni í góðum mat í "nunnuklaustrinu"..........og hver haldiði að hafi náð í legginn af lærinu sem húsráðendur settu í ruslapoka út fyrir dyr

.
Úff ég gef skvísunni aldrei svona, er skíthrædd við flísarnar í svona beinum, en VÁ hvað henni fannst þetta gott.
Berglind Gestsdottir
21. mars 2008 klukkan 23:05
Vá hvað dagurinn er búinn að vera fallegur. Nótt var úti í allan dag. Í göngutúrum og garðinum Þetta á nú við drottninguna.Fórum í matarboð til tengdó í kvöld og ég gat ekki beðið eftir að komast heim og út í göngutúr. Fór extra langa leið,það var svo yndislegt veðrið.
Takk fyrir að skrifa Guðbjörg. Við verðum að smala saman í göngutúr einhvern daginn.
Berglind Gestsdottir
20. mars 2008 klukkan 17:15
Christ hvað það er kalt í dag. Fór í Krónuna að kaupa í matinn og hélt ég yrði ÚTI mér var svo kalt.
Nótt byrjaði að borða Mirror coat út á matinn sinn í gær. Ég er spennt að sjá hvort það verður breyting á feldinum hennar.
Er að telja í mig kjark til að fara út að labba........brrrrrrrrr.
Berglind Gestsdottir
18. mars 2008 klukkan 22:41
Skrýtið hvað ég sakna Nætur stundum hrikalega mikið, þegar ég er í vinnunni.
.Í dag var ég alltaf að hugsa til hennar.........þótt amma væri heima með krakkana og allt í góðu. Soldið bilað sko. Fékk allt heimilisfólkið með út að ganga. Það er svo gott að fá súrefni í kroppinn. Draga andann inn um nefið og út um munninn. Ahhh! svo hollt og gott.
Berglind Gestsdottir
17. mars 2008 klukkan 23:47
Mikið rosalega finnst mér flott að horfa á Nótt leita að hlutum,sækja og skila. Svo frábært þetta eðli þeirra.
Kvöldganga í ringingarúða og góðum félagsskap. Tumi, Vaka og Gauti röltu með.
Berglind Gestsdottir
16. mars 2008 klukkan 21:47
Vá hvað það er gott að fara út að ganga á kvöldin. Alveg himneskt. Vorum heillengi á röltinu og í leik. Ummmm.Elska lífið
Berglind Gestsdottir
16. mars 2008 klukkan 19:03
Hæ. Fórum aftur og vorum frá 12 - 15 í básnum og þá vorum við leystar af. Nótt sýndi á sér bestu hliðarnar eins og alltaf.
Mjög margir hafa aldrei séð súkkulaðibrúnan labrador og spurðu hvort Nótt væri ROTTWEILER. Halló!
Okkur fannst rosa gaman.

Eins og alltaf þegar við erum að hundast. LOVE IT.
Berglind Gestsdottir
15. mars 2008 klukkan 21:16
Kíktum í Garðheima í dag. Vorum frá 12 - 14. Hittum Misty/mömmut tíbráar tinda Tinna, Skaftárættina og marga fleiri.
Lofaði Samma og Degi að láta sjá mig þarna á morgun.
Við sáum hann Imbir..........oh hann er svo flottur Briard.
Berglind Gestsdottir
14. mars 2008 klukkan 15:25
Vá gelgjan hún Nótt. Hunsaði ALGJÖRLEGA innkall í morgunn, þóttist alltaf vera að koma, setti svo upp stríðnissvip og hljóp í burtu. Henni fannst þetta hrikalega skemmtilegt, en gamanið kárnaði þegar hún fékk tilltalið! Varð alveg eins og engill með geislabaug á eftir.
Merkilegt hvað hún veit nákvæmlega upp á sig skömmina. Óþekktarrassgat.
Berglind Gestsdottir