15. apríl 2011 klukkan 15:40
Alþingi samþykkti í dag breytingar á lögum um gæludýrahald í fjölbýlishúsum. Hér eftir verður hunda- og kattahald í fjölbýlishúsum háð samþykki tveggja þriðju hluta eigenda sem hafa sameiginlegan inngang eða stigagang.
Áður þurfti samþykki allra íbúa fjölbýlishúsa en breytingartillaga Helga Hjörvar gekk út á að aðeins þyrfti samþykki tveggja þriðju hluta íbúa.
Tillagan var samþykkt með þrjátíu og sjö atkvæðum gegn þremur, en Katrín Jakobsdóttir, Unnur Brá Konráðsdóttir og Vigdís Hauksdóttir greiddu atkvæði gegn tillögunni. Þá var einnig samþykkt að sé íbúi blindur eða fatlaður á annan máta þannig að hann þurfi á sérþjálfuðum leiðsögu- eða hjálparhundi að halda sé honum heimilt að halda slíkan hund óháð öðrum íbúum.
Þó skuli kærunefnd húsamála leita lausna á málum ef íbúi fjölbýlishúss er með ofnæmi fyrir hundum eða köttum á svo háu stigi að sambýlið við leiðsögu- eða hjálparhund sé óbærilegt.
frettir@ruv.is
Berglind Gestsdottir
14. apríl 2011 klukkan 11:08
| Opið hús í Sólheimakoti sunnudaginn 17. apríl |
Deildin verður með opið hús sunnudaginn 17. apríl frá kl. 11:00 - 14:00. Albert Steingrímsson, hundaþjálfari, ætlar að koma og fræða okkur um almenna hlýðni og Retriever hlýðni. Heitt verður á könnunni og tækifæri gefst síðan til að fara út að æfa eða fara í göngutúr um svæðið. |
NÚ LEGG ÉG TIL AÐ VIÐ HITTUMST Á SUNNUDAGINN Í SÓLHEIMAKOTI KL. 11. HLUSTUM Á ALBERT, OG HREYFUM OKKUR SVO MEÐ HUNDANA Á EFTIR.
ÉG MUNDI GJARNAN VILJA SJÁ HUNDA ÚR BÁÐUM GOTUNUM :) <3
KOMA SVO!
Berglind Gestsdottir
13. apríl 2011 klukkan 23:00
Þrír ungliðar frá Valshamars voru sýndir á febrúar sýningu HRFI, Valshamars - Dagur, Valshamars- Líf og Valshamars - Freyja. Þau komust öll í verðlaunasæti í sínum flokki og fengu rauðan borða/Excellent og flotta dóma.
Fyrst og fremst eru þó Valshamars hvolparnir dásamlegir fjölskylduhundar. Fegurðin er auðvitað frábær bónus :)
Berglind Gestsdottir
13. apríl 2011 klukkan 22:36
Þá er Nótt búin að fara í augnskoðun í þriðja skiptið. Hún fékk mjög góða augnskoðun og kom vel út úr henni. Perfect eyes og engir arfgengir augnsjúkdómar.
Það styttist í lóðarí hjá drottningunni :)
Berglind Gestsdottir
06. apríl 2010 klukkan 19:31
VALSHAMARS LABRADOR. Fylgist með okkur þar líka. Kæru hvolpa eigendur,endilega hendið þar inn myndum og jafnvel sögum úr daglega lífinu.:)
Berglind Gestsdottir
31. mars 2010 klukkan 21:35
Ég verð að biðja ykkur afsökunar á myndasíðunni. Það virðist eitthvað vera að. Ég reyni að komast að því hvað veldur.
Bestu kveðjur og gleðilega páska. Njótið hvers einasta dags :) með voffunum ykkar :)
Berglind Gestsdottir
30. mars 2010 klukkan 22:22
Hann Garpur kom og hitti okkur Nótt upp við Hafravatn. Veðrið var dásamlegt og mæðginin léku sér.......í allt að tvo tíma. Nótt var til í sundið, en var treg til að fara langt.......og við sem sagt týndum því boltanum okkar .)....again. :) Ég kastaði helst til langt og Nótt ekki til í langa vegalengd. Garpur skottaðist í vatninu með henni.
Garpur er að vaxa mjög fallega upp. Kristín var með myndavél og tók myndir af honum. Hann er þvílíkur POSER, og stillti sér flott upp í gríð og erg. :)
Þær fréttir koma frá Egilsstöðum að Freyja þykir mjög efnileg í veiði, skv. hörðustu veiðiköllunum þar. Ég er rosa ánægð með það.
Ef ég spyr frétta af Freyju, kemur svarið. Allt guðdómlegt. Það gengur semsagt bara vel. :)
Moli er væntanlegur frá Eyjum um páskana, og þá ætla ég að mæla mér mót við hann. :) Það er óneitanlega erfitt að hafa hvolpana langt frá sér.
Mér finnst líka heldur langt í Suðurnesin.......er farin að skilja hana Auði Valgeirs, að hún vilji hafa þá alla innan borgarmarkanna. Ég er alltaf að hugsa um hvolpana..........alla daga :) sakna þeirra allra úr fyrra og seinna goti :)
Berglind Gestsdottir
19. mars 2010 klukkan 23:45
Er svona smám saman að frétta af niðurstöðum úr hvolpanámskeiðunum. Mér sýnist þetta vera 9,0 - 9,5 á línuna.
Þorsteinn kemst ekki yfir það hvað hann Bangsi hans er gáfaður........fékk 9,0 í BÓKLEGU :)
Bangsi á orðið sína eigin heimasíðu...aðallega komnar þar inn myndir, en ég vænti þess að þau Þorsteinn og Elísabet verði dugleg að skella inn fréttum og svoleiðis. Ég mun verða þarna inni á eins og grár köttur ;)
Þið getið fylgst með líka. linkurinn hans er hægra megin á síðunni okkar .
Berglind Gestsdottir
16. mars 2010 klukkan 21:18
UBER SKVÍSAN VALSHAMARS VISKA ER MEÐ A - MJAÐMIR OG A-OLNBOGA.
Kalli! Innilega til hamingju.
Berglind Gestsdottir
16. mars 2010 klukkan 20:20
Berglind Gestsdottir