VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Göngutúrar sem taka í lćrin.

31. mars 2008 klukkan 20:31
Ég er búin að uppgötva, að mér finnst skemmtilegri göngutúrarnir sem taka í lærin. Ég stóð mig ekki vel í dag
Fór á Lágafellið og reyndi að fara upp þar sem var nokkuð bratt. Þetta tók um hálftíma. Þá var Vaka farin að sífra. Þreytt í löppunum, illt þarna osfrv. Glottandi Hún er nú bara 5 ára ræfillinn. Ég þarf að fara meira ein,þá get ég tekið á eins og ég vil.
Horfði á Esjuna löngunaraugum, en lét þetta duga í dag...............Kannski á morgunn, hver veit.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Laugardags og sunnudags blogg

30. mars 2008 klukkan 17:12
Við Nótt vorum að vinna í Trippen frá 12 - 16 á laugardaginn. Fórum yfir nokkrar hlýðniæfingar, meðan var rólegt. Komum heim. Skellti mér í gallann og á bakið, bakpoka með ca 10kg í  Gekk  ansi góðan hring, og leitaði uppi brekkur og hæðir sem tækju aðeins í lærin. Yndislegt.
Sunnudagur. Keyrði inn i Skammadal með hundana, og þar upp á Helgafell. Rokið þarna uppi var gífurlegt. Ég stóð varla í lappirnar....og ég er nú ekkert léttmeti sko. Svalur Aftur til baka. skilaði bilnum heim og tókum góðan hring á opnu svæði við Varmána.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Föstudagsleti

28. mars 2008 klukkan 23:24
Við Nótt í vinnunni í dag. Komum heim. Nótt og Tumi fóru út í garð  í fótbolta með stelpunum. Ég hljóp yfir hin klassísku húsverk, steikti hamborgara og pizzur ofan liðið, gaf síðan hundunum að borða. Ég var búin að ákveða að hvíla í kvöld. Enginn göngutúr......skellti mér í sjónvarpssófann, en var ekki róleg. Kl.22 gafst ég upp. Í gallann og út. Fór góðan hring í taumgöngu og svo lausahlaup og boltaleikur á eftir. Heim. Vatn handa hundunum og sturta fyrir mig. Er aftur komin í sjónvarpssófann og nú er ég SÁTT.Hlæjandi
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Leiđindaveđur

27. mars 2008 klukkan 22:22
Jæja. Taum gengum ca 5 km. Að heiman út að Lágafellslaug og til baka.Veðrið var svona.......ekki eins og það sé að koma vor. Frekar eins og um hávetur. Frosið beit í kinnarnar, hálka, snjór og rok.......eins og segir í 10 veðurfréttunum. Norðaustan átt, og engar líkur á hlýju lofti á leiðinni til landsins. SO! við bara klæðum okkur vel!Hlæjandi
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Mirror coat, Halti og The dog trainer tutor

27. mars 2008 klukkan 10:31
Sko......er sjálfsagt ímyndun, en mér finnst eins og það hafi dregið úr hárlosi á bænum. Ég setti bara allt stóðið (Tuma,Nótt og Gest (köttinn) á þetta og ég hef ekki þurft að ryksuga á hverjum degi þessa viku....thats for sure. Mirror coat er að virka.
Og Halti. Vaka 5 ára getur gengið með Nótt í taumi........undir eftirliti að sjálfsögðu, án nokkurra erfiðleika. Halti er snilld.
Svo var ég að fá mér The dog trainer tutor. Snilldar hundabók (download á netinu.) Brand new.
Hvert ætti maður að labba í dag.?      Skoða kortin í dag vel mér góða leið.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

6 km

26. mars 2008 klukkan 23:11


Nótt var með mér í TRIPPEN í dag. Viðskiptavinirnir voru yfir sig hrifnir af henni , "þvílík fegurð" hrópaði ein og allir hrósuðu henni mikið fyrir það hversu stillt  og prúð hún er.......hm veit nú ekki hvað skal segja um það, en það er eiginlega hálf dularfullt hversu prúð hún er þessa dagana. Eins og draumur í dós........en það gæti verið að öll hreyfingin skýri hegðunina eitthvað. Vitiði! Tumi YFIR GELTARI, er miklu rólegri og prúðari líka.....og ég er viss um að það eru líka löngu göngutúrarnir sem ég tek hann orðið alltaf með í, því honum finnst þetta geðveikt....ég hélt alltaf að hann væri of lítill í langar göngur og hvað þá á fjöll. Nei minn er sko alltaf fremstur í flokki. Tumi er sko 3 ára tjúi.

Fórum 6 km. Langan og fallegan hring. Nótt svamlaði í Varmánni og naut sín í botn. Tumi,Vaka og Víðir fóru með. Horfi nú á Helgafellið sem væntanlegt markmið.
Er farin að hugsa til sumarsins og langar að labba Laugaveginn með liðið.....nei ekki þann Laugaveg. LAUGAVEGINN!Hlæjandi
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

5 km í kvöld

26. mars 2008 klukkan 11:51
Set þetta inn núna, svo ég verði að standa við það.........stefni á 5 km göngu í kvöld. Það er alltaf gott að setja sér markmið ER ÞAÐ EKKI! Glottandi Veit að Nótt er klár í slaginn og Tumi slær örugglega til líka.
Já og svona til að fylgjast með. Þá var ég að breyta um mat hjá Nótt. Hún fær núna fitu og próteinríkari mat frá PROPAC
vegna þess hversu mikið hún er hreyfð. Ágætt að minnast á það að hún hefur verið á PROPAC frá því hún fæddist, og ég er alveg rosalega ánægð með þann mat og þjónustan er sú besta sem getur orðið.  www.snati.is
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Lágafell

25. mars 2008 klukkan 21:43
Skelltum okkur á Lágafellið, og röltum í um einn og hálfan tíma.......og vitiði hvað! HALTI er SNILLD. Virkar strax, og þvílíkur munur á taumgöngu. Ég verð að fara að græja myndavélina. Við máttum þakka fyrir að sérsveit lögreglunnar var ekki i nágrenninu. Vegna kuldans vorum við öll frekar svona terroristaleg með buff fyrir andlitunum út af kuldanum. Þarf að ná þessu á mynd, örugglega fyndin sjón. ha,ha.
Hlæjandi
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Halti.

25. mars 2008 klukkan 16:07
Jæja aftur er alveg hriiiiiiiikalega kalt. Við Nótt erum í vinnunni (TRIPPEN). og ég er að telja í mig kjarkinn í vasklegan göngutúr í kvöld. Ég keypti Halti taum á Nótt í morgunn. Hún er nefnilega svo mikill "togari" og ég nenni því ekki lengur.
Prófaði að setja múlinn á hana og átti allt eins von á að hún yrði alveg snar, en hún er alltaf sama ljósið. Lét hana vera með múlinn í svona 15 mínútur og tók hann af þegar hún var róleg og svaf. Það verður gaman að sjá hvernig gengur í kvöld........
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Aftur á Esjuna og nú ađeins lengra upp.

24. mars 2008 klukkan 17:47
Þetta hljómar eins og við séum að hæðar aðlaga okkur.......eins og við séum að reyna að komast á Everest. Koss
Fórum upp að Kögunarhól. Lengra tryesti ég mér ekki með Vöku. Það var snjór og hálka á köflum og ekki alveg öruggt.
Ég hefði verið til í að fara lengra og þurfti ekki að spyrja hundana, sem voru drullugir upp fyrir haus. Göngufólk sóttist í að mynda Tuma, sem skokkaði í hettupeysunni sinni þvílíkur töffari.
Svo var það sturta á línuna. Enginn húsum hæfur af drullu.Hlæjandi
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Ţá var ţađ Esjan.

23. mars 2008 klukkan 17:31
Rigningarúði......besta gönguveðrið.  Gengum áleiðis á Esjuna. Fórum nú ekki langt því amma var meðHlæjandi Förum alla leið næst. Nótt passaði vel upp á að allir væru með og í lagi.   Nótt fann sér læki til að sulla í og varð drullug upp fyrir haus. Þetta er LÍFIÐ! Nú bíður Nótt eftir Míu/Vizlu sem er að koma í páskamat með fjölskyldunni sinni. Þá verður líf í tuskunum.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Skaginn og Kjósin

23. mars 2008 klukkan 00:34
Fórum upp á Skaga í dag. Horfðum á Snædísi Óla keppa á hestinum Kulda. Hún stóð sig auðvitað með mikilli prýði. Það er alltaf gaman að sjá flotta hesta og góða knapa.
Síðan var kíkt á kaffihús á Akranesi. Þaðan í sund. En við Nótt,Tumi,Unnur og Snædís völdum að fara í fjöruferð. Það var nú skemmtilegt. Nótt sótti bolta í sjóinn alveg út í eitt, og Tumi stóð á gólinu af áhyggjum þegar hún lét vaða í öldurnarBrosandi.
Dagurinn endaði að kveldi kominn í Kjósinni í góðum mat í "nunnuklaustrinu"..........og hver haldiði að hafi náð í legginn af lærinu sem húsráðendur settu í ruslapoka út fyrir dyrSkömmustulegur.
Úff ég gef skvísunni aldrei svona, er skíthrædd við flísarnar í svona beinum, en VÁ hvað henni fannst þetta gott.Hlæjandi
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Úti í allan dag.

21. mars 2008 klukkan 23:05
Vá hvað dagurinn er búinn að vera fallegur. Nótt var úti í allan dag. Í göngutúrum og garðinum Þetta á nú við drottninguna.Fórum í matarboð til tengdó í kvöld og ég gat ekki beðið eftir að komast heim og út í göngutúr. Fór extra langa leið,það var svo yndislegt veðrið.
Takk fyrir að skrifa Guðbjörg. Við verðum að smala saman í göngutúr einhvern daginn.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Svo kaaaaaaaalt

20. mars 2008 klukkan 17:15
Christ hvað það er kalt í dag. Fór í Krónuna að kaupa í matinn og hélt ég yrði ÚTI mér var svo kalt.
Nótt byrjaði að borða Mirror coat út á matinn sinn í gær. Ég er spennt að sjá hvort það verður breyting á feldinum hennar.
Er að telja í mig kjark til að fara út að labba........brrrrrrrrr.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Saknađi hennar svo........

18. mars 2008 klukkan 22:41
Skrýtið hvað ég sakna Nætur stundum hrikalega mikið, þegar ég er í vinnunni.
.Í dag var ég alltaf að hugsa til hennar.........þótt amma væri heima með krakkana og allt í góðu. Soldið bilað sko. Fékk allt heimilisfólkið með út að ganga. Það er svo gott að fá súrefni í kroppinn. Draga andann inn um nefið og út um munninn. Ahhh! svo hollt og gott.Svalur
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Rosalega gaman.........

17. mars 2008 klukkan 23:47

Mikið rosalega finnst mér flott að horfa á Nótt leita að hlutum,sækja og skila. Svo frábært þetta eðli þeirra.
Kvöldganga í ringingarúða og góðum félagsskap. Tumi, Vaka og Gauti röltu með.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Yndisleg kvöldganga

16. mars 2008 klukkan 21:47
Vá hvað það er gott að fara út að ganga á kvöldin. Alveg himneskt. Vorum heillengi á röltinu og í leik. Ummmm.Elska lífiðBrosandi
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Og aftur stórhundasýningin

16. mars 2008 klukkan 19:03
Hæ. Fórum aftur og vorum frá 12 - 15 í básnum og þá vorum við leystar af. Nótt sýndi á sér bestu hliðarnar eins og alltaf.
Mjög margir hafa aldrei séð súkkulaðibrúnan labrador og spurðu hvort Nótt væri ROTTWEILER. Halló!
Okkur fannst rosa gaman.Hlæjandi Eins og alltaf þegar við erum að hundast. LOVE IT.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Stórhundasýningin

15. mars 2008 klukkan 21:16
Kíktum í Garðheima í dag. Vorum frá 12 - 14. Hittum Misty/mömmut tíbráar tinda Tinna, Skaftárættina og marga fleiri.
Lofaði Samma og Degi að láta sjá mig þarna á morgun.
Við sáum hann Imbir..........oh hann er svo flottur Briard.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Óţekktin í henni!

14. mars 2008 klukkan 15:25
Vá gelgjan hún Nótt. Hunsaði ALGJÖRLEGA innkall í morgunn, þóttist alltaf vera að koma, setti svo upp stríðnissvip og hljóp í burtu. Henni fannst þetta hrikalega skemmtilegt, en gamanið kárnaði þegar hún fékk tilltalið! Varð alveg eins og engill með geislabaug á eftir.
Merkilegt hvað hún veit nákvæmlega upp á sig skömmina. Óþekktarrassgat. Glottandi
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Inga Lilja og Sunna, skelfingu lostnar!

12. mars 2008 klukkan 23:04
Litlu vinkonur okkar Inga Lilja og Sunna voru ekki par hrifnar af brussunni Nótt í dag. Ekki skrýtið þegar dýrið er jafnstórt og þær. 'Eg yrði skelfingu lostinn ef ég myndi mæta FÍL,skiljiði.
Við þurfum nú samt að leyfa þeim að kynnast Nóttinni fögru, svo þær sjái hversu sauðmeinlaus hún er.
HÚN ER SVO BEST.
Held ég gleymi því aldrei þegar Inga Lilja FLAUG inn í bílinn sinn.....greyið. Það var pínu fyndið. Eins og í hasarmynd. :)
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Enginn göngutúr í dag.

10. mars 2008 klukkan 21:59
Ég fékk það nú í hausinn að hreyfa Nótt ræfilinn of mikið um helgina. Hún er ekki hress í fætinum. Haltrar og er aum. Eins gott að sitja á sér í vikunni. Nóttin próttin er svo sæt og falleg. ELSKANA. :)
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Heillangur göngutúr

09. mars 2008 klukkan 16:07
Hver stenst íslenskt veður þegar það sýnir bestu hliðarnar. Veðrið í dag, betra en í gær, og ég sem ætlaði þvílíkt að hlífa Nótt við útivist, út af fætinum hennar.En hún fór með í 1 og 1/2 klst göngu með okkur í dag.
Það er gott að búa í Mosfellsbæ. :) vá hvað það er GOTT.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Ţvílíkt veđur.

08. mars 2008 klukkan 19:35
Vá það var svo flott veður í dag. Sól og yndislegt. Urðum hreinlega að fá okkur
göngutúr. Fórum niður með húsinu og inn á göngustíginn sem er beint fyrir neðan hjá okkur. Þar fékk hún að hlaupa frjáls, og það er svo fyndið, þá brosir hún.
Hún passar rosa vel upp á Vöku og heldur sig alltaf nálægt henni.
Saman skokkuðu þær göngustíginn í sólinni.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Fórum til dýra.

07. mars 2008 klukkan 14:42

Skrapp í Víðidalinn með hana Nótt í morgun. Klofna klóin datt hreinlega bara af fyrir framan nefið á dýralækninum. Þannig að það var ekkert gert.  Sem betur fer. Ætla að sleppa göngutúrum um helgina, ekki nema að það verði þurrt!.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Klofin kló

06. mars 2008 klukkan 22:14

Tók eftir því í dag að Nótt sleikir og sleikir á sér tærnar. Það þýðir bara að það er eitthvað að. Við nánari eftirgrennslan er ein klóin klofin í tvennt! og sést í rautt. Áts. Þetta þýðir heimsókn til dýra á morgun. Ætli klóin verði ekki tekin af.
Fórum því ekkert út að leika í dag.

Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Fórum út ađ SKAUTA

05. mars 2008 klukkan 20:15
Já ætluðum út að ganga, en skautuðum eiginlega frekar. Gangan var skrautleg, þannig að bætt var úr til að Nóttin fengi útrás, með frisbee leik. ÍHAA, það finnst henni stuð. En grasið var blautt og kom illa lyktandi undan snjónum. Heimilisfólkið fitjaði upp á trýnið  þegar við komum inn fullar af yndislegu súrefni og sögðu að það væri ógeðsleg lykt af okkur. Ó. Það þýðir BAÐ.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Myndirnar ennţá erlendis

04. mars 2008 klukkan 12:58
Hringdi að gamni í HRFI og spurðist fyrir um myndirnar. Þær fóru semsagt út 19.febrúar og það þýðir því 2 vikur í dag.
Hvað ætli þýði að bíða lengi.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Nóttin ISO9908/06

03. mars 2008 klukkan 17:44

'A þessari síðu munu verða upplýsingar um Nótt. Árangur hennar á sýningum, daglegt líf og gothugleiðingar.

Nótt er fædd 16.06.06 og er því 20 mánaða í dag. Faðir hennar er Úlli/Uncletom of Brownbank Cottage NORDUCH,DKCH,SU(U),ISCH,BEJSG98 og móðir Misty.
Faðir er svartur og móðir brún.
Nótt er PRA frí, og augnskoðun athugasemdalaus. Beðið er eftir niðurstöðum úr mjaðma og olnboga myndatökum.
Hún hefur verið sýnd þrisvar sinnum með mjög góðum árangri.

Grunnnámskeið í hundauppeldi. Gallerý Voff. 5.12.06-13.02.07

Einkunn fyrir skriflegt próf 9,0
Einkunn fyrir hlýðniæfingar 9,6
Mæting 100%

Nótt fékk GULLPENINGINN, sem veittur er besta hvolpi á námskeiði.




Sýning 15.07.2007  Labradordómari, Connie Svane Petersen
1.sæti/rauður  borði unghundaflokkur, 1.sæti/rauður borði unghundakeppnisflokkur, 1.sæti/rauður borði opinn keppnisflokkur, Meistarastig /borði í fánalitum, heiðursverðlaun /borði fjólublár, Besta tík sýningar, Besti hundur tegundar.
Besti hundur sýningar
.

Dómur
Connie Svane Petersen er Labrador dómari. (DANMÖRK)
Hún tók sér langan tíma í dómi og gaf eftirfarandi niðurstöðu.

13 manede sod tæve. Godt hoved og god ojnefarve. Stærk hals og god overligende krop av passende dypt og bredde.God forbryst. Gode benstammer der er vel vinklet. Fin farve og pels.  God bevægelser. Vel vist. I lidt for god foderstand.

Við vorum gjörsamlega búnar á því eftir þessa fyrstu sýningu okkar beggja. Fórum í sveitina þar sem Nótt naut þess að vera frjáls og leika sér í náttúrunni.


Sýning 06.10.07  Dómari Harry Tast (FINNLAND)

Unghundaflokkur,1.einkunn/rauður borði. Unghundakeppnisflokkur
4.sæti.

Dómur.
Excellent type. Well developed. Big and round ribcage. Well balanced tail. Well shaped head.Round eyes. Excellent anquility, bone and feet.
Short silky coat. Regular movements.


Sýning 02.03.08 Dómari Nils Molin (SVÍÞJÓÐ)

Unghundaflokkur 1.einkunn/rauður borði. Unghundakeppnisflokkur 1.sæti/rauður borði.

Dómur.

Very good. Beautiful head expression. Strong muscle. Elegant neck. Very good angulation in front. Strong in body. Acceptable mover. Very good coat.














Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd