VALSHAMARS LABRADOR

  • Nafn: Berglind Gestsdottir
  • Netfang: berglind_1@hotmail.com

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Ætla að rölta inn Varmadalinn á morgunn.

30. apríl 2008 klukkan 15:16
Veðurspáin er góð fyrir morgundaginn. Ég ætla að labba árfarveginn inn Varmadal á morgun. Þær voru nefnilega að eignast háfa ,Vaka og Unnur og ætla að veiða í leiðinni. Bara gaman. Síðast tókum við með okkur harðfisk og það var barist um hvern bita, hundar og menn,og ekki voru þeir margir bitarnir.......ógó dýr lúxus, harðfiskurinn.
Ætlar þú að rölta með!
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Það var bara hlegið að mér........

29. apríl 2008 klukkan 21:20
Ullandi Hringdi í dag í Seglagerðina og sagði að gönguskórnir mínir væru búnir og nú vantaði mig nýja. (mínir svona 12 ára og ég keypti þá þar.)
Skvísan sem svaraði skríkti af hlátri og sagði.......mörg ár síðan við hættum að selja skó......en hún bauð mér tjaldvagna á góðu verði.......uh! ég sagðist heldur vilja labba, og þakkaði fyrir mig. Á semsagt ennþá enga skó,...góð afsökun fyrir því að fara ekki í göngutúr í kvöld svo ekki sé minnst á kuldann.  Ég er með móral og Nótt með fýlusvip.Ullandi Og auðvitað endaði þetta með því að ég fór út á tún í boltaleik við Nóttina  og viti menn........ég  í  gömlu hjúkkuklossunum.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Við erum sko hressar :)

29. apríl 2008 klukkan 14:24

Get svarið það hélt að ég hefði misst af sumrinu. Bara eins og það væri aftur komið haust. Brr.  Haustlegt í dag.
Nótt er farin að sýna hormónabreytingar...farin að þykkna að aftan. Líklegast þrjár vikur í að hún lóði ca. Já hann Askur er naskur, hí,hí. Hann var nefnilega eins og líimdur við rassinn á skvísunni í göngutúrnum um daginn.

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Á enga skó!

28. apríl 2008 klukkan 20:41
Ég held að Nótt sé að verða sköllótt. Það bókstaflega hrynur af henni feldurinn.Ég er með ryksuguna á eftir henni. Þetta er frekar leiðinlegur tími hundaársins. Ég er löt í dag.Upptekin af sjálfri mér og nánustu framtíð. Stundum væri gott að sjá aðeins frameftir en ekki samt of langt.Óvissa er óþægileg, og breytingar oft erfiðar.En það er bjart framundan, sumar og sól. Ég vona að ég geti átt frí í ALLT SUMAR. Nótt liggur við fæturna á mér og vonast eftir göngutúr í hvert skipti sem ég svo lítið sem hreyfi mig........ég kláraði gönguskóna mína í gær, botninn gjörsamlega datt undan þeim.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Varmidalur

27. apríl 2008 klukkan 21:57

Gengum inn Varmadal í guðdómlegu veðri í hádeginu í dag.  Nótt synti og naut sín í botn. (tókum myndir eru í albúmi Hamrahlíð 21.apr.) Svo vorum við í garðinum fram á kvöld og grilluðum upp á gamla móðinn á kolagrilli, pylsur og hamborgara og marshmellows í eftirrétt.Brosandi

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Úlfarsfellið í góðum félagsskap.

26. apríl 2008 klukkan 21:09
Áttum yndislegan dag. Hittum Guðbjörgu og Ask um kl. 13 við rætur Lágafells. Það var alveg frábær göngutúr með þeim. Kíkiði á myndirnar sem hún Guðbjörg tók. Bara flottar.
Vorum svo í garðinum að vinna fram að kvöldmat, og svo kíkti ég upp að Esju rótum eftir matinn. Ég verð alveg friðlaus þegar veðrið er svona gott.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Hver kemur með á ÚLFARSFELLIÐ á laugardaginn. 26.apríl.

24. apríl 2008 klukkan 20:36
Ég ætla að ganga á Úlfarsfellið á laugardaginn. Verð um kl. 13 í Hamrahlíð/skógræktarlandi Mosfellsbæjar.
Endilega komiði líka.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Tröllafoss

24. apríl 2008 klukkan 18:26
Ákvað með engum fyrirvara, að friðþægja þráhyggjuna í mér og ganga að Tröllafossi í morgunn. Þetta var ca. 2 klst ganga, þar sem við fórum ekki hefðbundna leið.
Þurftum að klifra og klöngrast. Víðir, Vaka, Nótt og Tumi fóru með.
Við týndum uppáhalds dótinu aftur og nú endanlega. Ég henti því út í á og það sigldi hratt sína leið, og Nótt náði því ekki. Nú þarf ég að rifja upp hvar ég keypti það.Við vorum varla stigin út úr bílnum þegar Vaka datt í ánaSvalur Það stoppaði okkur ekki,þar sem veðrið var frábært og um 10 c. hiti. Hún hélt áfram með vatnið sullandi í skónum og drjúpandi úr hárinu....já hún varð alveg holdvot. Við borðuðum nesti þegar áfangastað var náð. Áð um stund og síðan haldið til baka...hefðbundin göngustíg, sem var nokkuð léttari ganga get ég sagt ykkur. Ég tók myndir en myndasíðan er ennþá biluð, set þær inn síðar.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

23. apríl 2008 klukkan 10:34

Nú er maður farinn að njósna um dómarann í Fossatúni. Hann er greinilega Golden Retriever maður......Allir Goldenar að mæta. Hann hefur dæmt marga goldena.
Meira síðar.

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Göngutúrnum fórnað.

22. apríl 2008 klukkan 23:29

Fórnaði göngutúrnum í kvöld. Fór strax eftir vinnu að heimsækja yndislegan frænda minn sem ég elska alveg í tætlur. Hann er 89 ára og lá við dauðans dyr fyrir mjög stuttu. Núna er hann bara pirraður yfir því að vera úthaldslaus aumingi, eins og hann segir sjálfur. Hann fór bæði í dag og í gær út í garð að raka lauf........með manneskju á hælunum, því hann er enginn maður í svona lagað. En að gefast upp, er ekki í dæminu. Elskann. Brosandi

Annars fékk ég póst frá góðvini mínu Guðsteini, sem á Úlla pabba Nætur......föðurafi hennar lést á dögunum 15 ára gamall. Guðsteinn á einnig helming í rakkanum sem mig dreymir um að fá á Nótt. Það er gott að eiga Guðstein að í hundaheimum og líka hann Dóra minn.

Þessa dagana eignast ég endalaust af yndislegum vinum. Nú síðast hana Ástu sem á hana Bláskóga Sólu. Ég hlakka hrikalega til að sjá Sólu.  Og aumingja Ásta! við fyrstu kynni drekkti ég henni í hundaumræðu.Glottandi

Mig langar í góðan göngutúr á sumardaginn fyrsta. Hvernig sem viðrar.

 
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Fjósalykt........alla vega vond lykt. Jukk.

22. apríl 2008 klukkan 12:04
Það er eitt við að fara í lausagöngur.....þ.e. þegar Nótt nær sér í einhverja viðurstyggilega lykt einhversstaðar.
Hún var böðuð í gær og svo í bólið. Gauti var svo búin að henda henni og búrinu fram á gang í morgun, þvi hún lyktaði ennþá eins og svín. Aumingjans Nóttin. Jæja, þá var það bara enn og aftur í bað. Ég er skíthrædd við að baða hana mikið. Hún er nefnilega alveg ferleg í feldinum núna. Hélt hún mundi kannski bara koma sköllótt úr sturtunni. Ullandi
Annars bíð ég spennt þessa dagana yfir því hvort hún ætli sér að lóða núna....eða síðar.
Mér finnst hún vera þrútnari að aftan, en það gæti líka bara verið mitt súperflotta ímyndunarafl.
JÁ þið verðið að afsaka, en myndasíðan hrundi. Er búin að senda póst á umsjónarmenn síðunnar, sem ég vona að geti lagað þetta fyrir mig.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Endurheimtum uppáhaldsdótið

21. apríl 2008 klukkan 22:57
Ég, Unnur Freyja, Vaka, Nótt og Tumi. Fórum í Hamrahlíðina. Í guðdómlegu veðri. Okkur tókst að ná í uppáhaldstístidótið hennar Nætur upp í tré og það var engin smá gleði við að fá það aftur. Við tókum fullt af myndum.Hlæjandi
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Blikdalsá

20. apríl 2008 klukkan 21:31
Skruppum upp að Blikdalsá og lékum okkur. Tókum fullt af myndum. Vorum eiginlega úti í allan dag. Sinntum vorverkum í garðinum, og Nótt skottaðist í kringum okkur. Það var svo gott veður 10 c hiti og blanka logn.
Nótt var böðuð eftir Blikdalsár  gönguna. Hún varð drulluskítug á leiðinni til baka að bílnum. Mold og drulla kringum Leirvogstungu framkvæmdir. Sorglegt hvað alltaf er verið að taka mikið af fallegri náttúrunni undir steinsteypu.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Náðugt í dag.

19. apríl 2008 klukkan 22:51
Ég fór í vinnuna, en Nótt fékk frí.  Víðir grillaði handa okkur ljúfa steik í kvöldmat. Nótt fékk smá.  Fórum út að leika og Nótt er alveg sprungtHlæjandi.
Eitt sem veldur mér áhyggjum þessa dagana, og það er að Tumi tjúinn, sem er þriggja ára og eldri en Nótt hefur verið svo vondur við hana síðustu viku. Þetta er alveg nýtt og ég get ekki tengt þetta við neitt sérstakt. Hann rýkur algjörlega óvænt í hana með látum og glefsi. Nótt er skíthrædd við hann. Ég er alveg ráðalaus.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Það var brjálað að gera hjá okkur Nótt í vinnunni.

18. apríl 2008 klukkan 22:24
Svo bilað að ég varð að setja  Nótt ræfilinn inn á baðherbergi í geymslu, því ég var alltaf að afgreiða ca 4 í einu og gat ekki haft augun á henni. Búðin var ein rúst í allan dag, og við vorum í 2 klukkutíma eftir lokun að rétta hana af fyrir morgundaginn. Greip MC donalds á leiðinni heim....alltaf jafn ógeðslegt.  Nótt var MJÖG fegin að komast heim.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Liggjum í sófanum og horfum á skólahreysti. Áfram Lindaskóli.

17. apríl 2008 klukkan 21:01
Nótt fékk endalausa athygli í Trippen í dag. Alveg endalaust falleg. Haute Couture, eins og skórnir sagði ein. Hlæjandi
Ég baðst undan göngutúr í dag, og Nótt tók það til greinaSvalur. Í fyrsta skipti í marga daga líður mér þokkalega. Hausverkurinn farinn og er að ná að rífa úr mér kvefið og hálsbólguna. Ætla ekki að taka neina sénsa núna. Verð heima í kvöld.
Já og Lindaskóli er að keppa í skólahreysti. Gauti minn, næstelsti er í stuðningsliðinu....í supermanbúningi, sem  er 10 númerum of lítill á hann.Hlæjandi
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Handónýt

16. apríl 2008 klukkan 17:51
Þetta ætlar að taka sinn tíma. Við fórum ekki einu sinni í vinnuna í dag. Sjoppan bara lokuð.  Nótt hefur fengið að væflast um garðinn í dag. Ekki merkilegt.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Busy day.

15. apríl 2008 klukkan 23:38
Sirrý og Guðni komu í heimsókn með hana Lace......eða hvað hún nú heitir. Náði því ekki almennilega. Allavega er hún L. agalega sæt pínulítil schafer stelpa, bara algjör fegurðardís. Hún Þórunn elskuleg gömul vinkona mín frá því vorum alveg pínulitlar kom líka og við fengum okkur latte og deildum sorgum og gleði.Tala af sér Síðast en ekki síst,þá leit hann Dóri vinur minn við í Trippen. Elska það að hitta hann og spjalla endalaust um hunda. Hlæjandi Það er gott að eiga vini.Koss 
Annars er ég að hressast og drattaðist með Nótt og Tuma í Hamralíð. Þetta varð nú engin kraftganga sko hjá mér. En hundarnir tóku á því. Vöku tókst að henda uppáhalds tístidótinu hennar Nætur lengst upp í eitthvað grenitré, og það var vonlaust að ná í það. Þannig að í Hamralíð er skreytt jólatré, með gúmmískrauti. Vaka ræfillinn varð hálf miður sín og spurði hvort svona kostaði marga peninga.Fýldur
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Boltaleikur

14. apríl 2008 klukkan 20:08
Ég lagði af stað í göngutúr en sneri fljótlega við, því ég var ekki í standi til þess. Fór í staðinn út á stóra túnið við húsið okkar og losaði orkustöðvarnar hjá skvísunni minni með boltaleik. Held ég hafi verið við það að sprengja hana. Nú liggjum við báðar. Ég af aumingjaskap. Hún af þreytu.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Jæja nú er ég að hressast.

14. apríl 2008 klukkan 09:28
Held ég sé að braggast. Það er yndislegt vorveður, bjart og fallegt.
Reikna með að ég treysti mér út með Nótt í dag.  Í gær fór ég bara út í garð með hana og við lékum með bolta. Það var frekar slappt. Sjáum til í dag.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Þetta var eitthvað einkennilegt.

13. apríl 2008 klukkan 10:27
Ég lá í allan gærdag, alveg flöt........og ligg ennþá alveg flöt. Náði mér sem sagt í einhverja pest. Ég er alveg eins og aumingi.Missti af veiðiprófinu og allt. Getur einhver uppdeitað mig hvernig fór.. Nótt lætur lítið fyriir sér fara. Hún sér að ég er ekki vænleg til verka í dag. Fýldur
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Skammidalur.

10. apríl 2008 klukkan 20:49
Skrapp inn í Skammadal. Fór innarlega í dalinn, og komst að því að litli bústaðurin minn sem er um 40 fm2 er HÖLL. Þvílíkir kofar sem eru þarna. Vona að ég særi engann. Gengum þarna um holt og hæðir.Þvílík blíða.
Og annað. Ég hef oft sagt það undanfarið,að ég mundi ekki ná bílprófi í dag, ef á reyndi, en ég þekki EITT skilti MJÖÖÖG vel, og það er skiltið sem segir bannað að vera með hunda!!!!!!! Þau eru alls staðar þessi. Lengst inni í sveit meira að segja.
Vá hvað ég verð skyndilega bæði blind OG heyrnalaus.Svalur
Berglind Gestsdottir
2 athugasemdir

Ræktunarnafn.

10. apríl 2008 klukkan 13:39
Kíkti við hjá HRFI og sótti um ræktunarnafn. Og hefst þá enn ein biðin.
Nafnið er VALSHAMARS Þar sem sá staður er okkur mjög kær. Við eigum lítinn sumarbústað í Eilífsdal í Kjós, sem stendur undir VALSHAMRI. Þar hef ég dvalið öll sumur frá því ég var sex ára. Þar líður Nótt best, í frelsinu í sveitinni.
Sjáum til hvað stjórn HRFI segir við þessu. Það er fundur hjá þeim 19.apríl.
Dísus hvað veðrið er GOTT.
Er að skrá okkur mæðgurnar í Retriever Hlýðni sem er að byrja 23.apríl.
Veit ekkert í hverju það felst........ætti ég kannski að vera að skrá mig í Retriever1?
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Aftur í Hamralíð

09. apríl 2008 klukkan 22:14

Það rættist heldur betur úr veðrinu í dag.  Við vorum að drepast úr leiðindum í vinnunni og gátum ekki beðið eftir því að komast út. Víðir grillaði og síðan vorum við farnar. Vaka fór með okkur og upplifði heilu ævintýrin í Hamralíð. Henni fannst við vera í útlöndum. Nótt svo að borða þegar við komum heim, og nú liggur hún alveg skotin á mottunni sinni.
Guðbjörg. Takk fyrir góð ráð. Ég ætlaði að kíkja á síðuna þína í morgun og þar stóð bara CRASHED!

Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Plan kvöldsins.

09. apríl 2008 klukkan 13:40
Ég er að spá í að setja á síðuna röntgen myndirnar af Nótt, já og svo ætla ég að græja  möppuna hennar. Líma inn borðana umsagnirnar og svona.
Jamm og eins og einn göngutúr.........veðrið er svo slabbí að ég er varla að nenna.
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Nýjar myndir.

08. apríl 2008 klukkan 22:41
Fórum í göngutúr í Hamrahlíð í kvöld. Það er skógræktarsvæði Mosfellsbæjar.
Æðislegur staður. Ég tók fullt af myndum á símann minn. Þið afsakið gæðin.
Myndirnar sjáið þið inn á göngutúr........þær eru að þvælast inn á sama albúmi og Fossatúns myndirnar. Ég bara man ekki hvernig á að búa til nýtt albúm.

Ég er ennþá ofar skýjum eftir fréttirnar í dag. Krossa fingurna að ég fái draumarakkann. Nokkuð viss um að mig dreymir hvolpa í alla nótt.Ullandi
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Biðin á enda.

08. apríl 2008 klukkan 13:23
Íha, ég er svo glöð og fegin og montin og, og, og.
Nótt er með fullkomnar mjaðmir og olnboga. Fékk A í öllu.

Ég gæti grátið af gleði ég er búin að bíða svo lengi eftir þessum svörum.

Þá er að bíða eftir næsta lóðaríi. sem skv. 6 mán. ætti að vera enda apríl
Eða skv. 9mán enda júlíl.
Nú ætla ég að hafa samband við ræktandann sem á rakkann sem mig langar að fá að nota.
Þannig að ef þið eruð í hvolpahugleiðingum þá skuluð þið fara að hafa samband.
kv.
Berglind sem brosir hringinn.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Laugardags og sunnudags blogg

06. apríl 2008 klukkan 19:16
Laugardagur í góðu veðri og frelsi í garðinum heima við.
Sunnudagur. Fórum í Kjósina að gera klárt fyrir sumarið. Þar var hlaupið út í eitt.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Helgi

04. apríl 2008 klukkan 20:24
Aftur komin helgi. Finnst ykkur eðlilegt hvað tíminn líður hratt!Brosandi Var búin að skrifa þetta fína blogg í gærkvöldi,en gleymdi að vista það. Annars var það á þennan veg.  Hvolparnir hans Dóra voru alveg UBER sætir.  Heim, skúraði og svo út að ganga. Vaka og Víðir slógust í hópinn. Veðrið var æði. Já og við bökuðum súkkulaði köku í kvöldkaffi.
Föstudagur: Vinna,vinna. Heim........og ég held að ég slaki á í kvöld. Ég er þreytt........En Nótt örugglega ekki.
Keypti Panacur á línuna. Nótt smjattaði á sínum átta töflum eins og smartísi,meðan það tók mig hálftíma að troða einni ofan í Tuma. Gestur fékk líka eina og það gekk vel að gefa honum. Hafið það rosa gott í kvöld.Koss


Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Fer að sjá hvolpana hans Dóra

03. apríl 2008 klukkan 13:15
Jæja. eins og alltaf þá erum við í vinnunni............boring. Je hvað ég væri til í að vera heimavinnandi. En hvað um það. Ég er svo spennt. Er að fara í kvöld og sjá hvolpana hennar Sölku/Dóra að byrja á námskeiði.Hvað er sætara en hvolpa skott sem eiga að fara hlýða einhverjum skipunum......Krúttlegast í heimi. Fer beint eftir vinnu. Svo er planið að þrífa þegar ég kem heim. Vitiði það eru flísar á öllu heima, og það er snilld þegar maður er með hunda. Svo þægilegt að þrífa og engar áhyggjur af að parket verði uppspólað.
Meira í kvöld.Hlæjandi
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

HÆ STEINI!

02. apríl 2008 klukkan 22:21
Þú ert fyrirmyndin mín í veiðinni!. Steini snilli. Gaman að heyra frá þér. Ég varð bara svo skelfingu lostinn upp við Silungapoll, að ég bara verð máttlaus við tilhugsunina. Ha,ha.
Annars var ég að koma inn. Fór út í rúman hálftíma með hundana. Það er snaarvitlaust veður, en í fínu að ganga ef maður er rétt klæddur. Sumir mundu nú  segja að það væri ekki hundi út sigandi.Hlæjandi
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd

Hef gaman af strákunum í veiðinni.

02. apríl 2008 klukkan 15:13
Brosandi Þeir eru svo bjartsýnir og hvetjandi strákarnir í veiðinni. En þeir gera sér enga grein fyrir því hvað það er erfitt að horfa á þá stýra hundunum eins og þeir gera það. Þvílíkir snillingar. Svo eru þeir svo almennilegir, segja að sé allt í lagi að fá 0 og svona á veiðiprófi. það mundi nú keppnisskapið í mér ekki þola. Ég ætla að kíkja á veiðiprófið í Hvammsvíkinni þegar það verður. Horfa á og verða neongræn af öfund.Glottandi
Berglind Gestsdottir
1 athugasemd

Hálf vindlaus í dag.

01. apríl 2008 klukkan 23:01
Fékk slæmar fréttir í dag. Aldraður frændi minn liggur fárveikur á sjúkrahúsi á Kanaríeyjum. Þetta er mikill uppáhaldsfrændi sem mér þykir mjög vænt um. Fyrir mér er hann eilífur, en er það ekki. Ég heimsótti eftir vinnu aldraða systir hans og frænku mína einnig sem mér þykir rosa vænt um.  Við Nótt komum því ekki heim fyrr en um kl. 21. Ég fékk mér að borða og var í huganum búin að salta göngutúr dagsins,en eins og alltaf finn ég að það muni gera mér gott að taka aðeins á því.
Kraftgekk góðan Mosó hring og hvuttarnir hlupu með. Nótt fékk svo kvöldmatinn sinn og núna erum við að slaka á.
Berglind Gestsdottir
Engin athugasemd